Guðbjörg varð vitni að morði: „Ég öskraði - ég bara trúði því ekki“

Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir, betur þekkt sem Gugga, opnar sig í viðtali í nýjasta tölublaði Mannlífs. Þar fer hún um víðan völl og tjáir sig um þau mörgu áföll sem hún hefur lent í sem og fíknina sem hún hefur þurft að glíma við allt sitt líf.

Eitt af því sem hún fjallar um í viðtalinu eru morð sem hafa átt sér stað í hennar nærumhverfi.

Fyrra dæmið var Guggu þungbært, en það átti sér stað árið 1993. Sá sem var myrtur var kærasti Guggu og morðið átti sér stað á heimili þeirra fyrir framan hann, sama ár og þau kynntust. „Stunginn til bana í hjartað af besta vini sínum út af afbrýðisemi.“ er haft eftir henni.

„Hann braust inn til okkar og var kominn með hnífinn inn í eldhús og stakk hann. Hann dó síðan í sjúkrabílnum á leiðinni á sjúkrahúsið. Mér var hent inn í fangaklefa, mér og tíkinni minni, af því að ég var búin að borða einhverjar pillur og gekk á kókaíni. Svo um morguninn komu tveir lögregluþjónar og einn prestur og ég öskraði bara: „nei, nei, nei“; ég bara trúði því ekki. Ég vissi nákvæmlega hvað þeir voru að fara að segja mér. Svo tilkynntu þeir að hann hefði dáið í sjúkrabílnum.“

Gugga segir að morðið hafi haft gríðarleg áhrif á hana og orðið til þess að henni hrakaði bæði andlega og líkamlega.

„Þarna var ég í neyslu og ég grét og grét og átti bara ógeðslega erfitt með að höndla þessar tilfinningar og ég vissi ekkert hvað þær hétu og ég var döpur í marga mánuði á eftir.“

Hitt dæmið átti sér stað talsvert síðar, eða þegar hún var í ástarsambandi með Jóhanni Traustasyni, sem var þekktari sem Jói. Samband þeirra vakti gríðarlega athygli á sínum tíma sérstaklega vegna umfjöllunar Kompáss um þau í upphafi þessarar aldar.

Gugga var í viðtalinu spurð hvað hafi verið það ljótasta sem þau hafi orðið vitni að á þessu tímabili, og hún svaraði:

„Vinur okkar kom til okkar eitt kvöldið og gaf mér hafnaboltakylfu og þetta kvöld drap hann besta vin sinn. En sem betur fer var hann farinn frá okkur; við vorum þarna í einhverju herbergi og við vildum ekkert vesen inni hjá okkur.“

Þetta atvik virðist ekki hafa haft eins djúpstæð áhrif á Guggu.

Hún hefur gengið í gegn um gríðarlega margt, en hægt er að lesa viðtalið í Mannlíf í heild sinni hér.