Guðbjartur ákærður fyrir kynferðisbrot í Kanada

Íslendskur nuddar, Guðbjartur Bodhi Haraldsson hefur verið ákærður fyrir að hafa brotið á skjólstæðingi sínum kynferðislega í Surrey í nágrenni Vancouver í Kanada. Hann starfar sem nuddari.

Þarlend lögregluyfirvöld sendu frá sér tilkynningu vegna málsins í síðustu viku. Þar kemur meðal annars fram að í síðasta mánuði þann 14. nóvember hafi kvenkyns skjólstæðingur Guðbjarts lagt fram kæru á hendur nuddara sem hún sakar um að hafa brotið á sér á stofu hans í Surrey.

Vísir greindi fyrst frá málinu. Guðbjartur var handtekinn af lögreglu ellefu dögum síðar eða þann 25. nóvember. Að sögn lögreglu hefur hann verið látinn laus úr haldi.

Það er undir þeim formerkjum að honum sé óheimilt að veita meðferðarþjónustu af nokkru tagi á meðan og er þar sérstaklega tilgreindar nuddmeðferðir í tilkynningu lögreglu. Þá biðlar lögregla eftir upplýsingum frá almenningi og birtir mynd af Guðbjarti.

Málið hefur vakið töluverða athygli þar vestanhafs og er fjallað um málið á vef kanadískra miðla. Þar kemur fram að Guðbjartur sé fimmtugur og hafi starfað sem nuddari á svæðinu í 29 ár, eða frá árinu 1993.