Grunur um hættulega bakteríu í sýklalyfjum á Íslandi: „Hræðilegt að hugsa um hversu margir hafa tekið þetta lyf“

Skelfi­leg baktería fannst ný­lega í mest notaða sýkla­lyfinu í Dan­mörku. Char­lotte Niel­sen Agerga­ard, deildar­­læknir á ör­veru­­deild há­­skóla­­sjúkra­hússins í Óðins­­véum, segir í sam­tali við TV2 að fólk eigi ekki að taka lyf sem það hefur keypt í dönsku apó­teki. „Það er hræði­legt að hugsa um hversu margir hafa tekið þetta lyf og eru hugsan­lega smitaðir,“ segir Agerga­ard en DV.isgreindi fyrst frá málinu hér­lendis.

Agerga­ard komst að því að í sýkla­lyfinu Dicillin frá sviss­neska lyfja­fyrir­tækinu Sandoz eru bakteríur sem eru ó­næmar fyrir fjölda sýkla­lyfja. Um 35 þúsund Danir hafa fengið lyfið á­vísað frá því í septem­ber og segi Agerga­ard þá eiga í hættu að smitast.

Í frétt DV.is segir að sama dag og frétt TV2 birtist sendi Lyfja­stofnun tölvu­póst til apó­teka á Ís­landi þar sem til­kynnt var að mögu­lega yrði sýkla­lyfið Stakl­ox 500 mg yrði inn­kallað.

„Á­stæða inn­köllunarinnar er að nokkrir ein­staklingar í Dan­mörku hafa sýkst af fjöl­ó­næmu bakteríunni Enterobacter Horma­echi. Rann­sókn leiddi í ljós að ein fram­leiðslu­geta af Dicillin inni­hélt þessa bakteríu, lotu sem að­eins var dreift í Dan­mörku. Rann­sókn hafi sýnt að mengun gæti átt við aðrar lotur af lyfinu og því hafi allar lotur Dicillin verið inn­kallaðar hjá ein­stak­lingum í Dan­mörku,“ segir í tölvu­póstinum sem DV vitnar í.

Sakl­ox kemur frá sama fram­leiðanda og Dicillin sem sýkti ein­stak­linga í Dan­mörku. „Það hefur ekki verið úti­lokað að lotur af Stakl­ox geti verið mengaðar af um­ræddum bakteríum.“

Lyfja­stofnun á­kvað eftir há­degi í dag að inn­kalla Stakl­ox 500mg.

„Þeir ein­staklingar sem hafa lokið Stakl­ox lyfja­með­ferð og hafa engin ein­kenni um sýkingu þurfa ekki að grípa til neinna að­gerða á þessari stundu. Þeir ein­staklingar sem hafa lokið Stakl­ox lyfja­með­ferð og eru með sýkingu, t.d. blöðru­bólgu skulu hafa sam­band við lækni.“

„Öll apó­tek í landinu eru upp­lýst um málið og hafa fengið leið­beiningar frá markaðs­leyfis­hafa Stakl­ox og Lyfja­stofnun um hvernig standa eigi að skiptum til ein­stak­linga. Á meðan á rann­sókn málsins stendur er tryggt að Stakl­ox sé ekki dreift til apó­teka, heil­brigðis­stofnana og ein­stak­linga. Önnur lyf sem inni­halda dicl­oxa­cillin og eru á markaði á Ís­landi eru ekki fram­leidd af sama fyrir­tæki og því nær inn­köllunin ekki til þeirra,“ segir á vef Lyfja­stofnunar.

Nánari upp­lýsingar um lyfið er að finna á vef Lyfja­stofnunar hér.