Grunaður um að skjóta fyrrverandi kærustu sína - Skammbyssa fannst í bíl ömmu hins mannsins

Nýjar vendingar bárust í dag um skotárásarmálið sem átti sér stað í Grafarholti í febrúar. Samkvæmt úrskurði Landsréttar frá því í vetur, sem birtist ekki fyrr en nýlega fannst skammbyssa, sem er talin hafa verið notuð við verknaðinn í bíl sem er í eigu ömmu annars tveggja manna sem eru sakborningar í málinu.

Fréttablaðið fjallar um málið í dag, en þar segir að samkvæmt gögnum í málinu hafi verið hleypt af tveimur skotum sem hæfðu tvær manneskjur, annars vegar í lærið og hins vegar í kviðinn. Sú sem var skotin í kviðinn var fyrrverandi kærasta annars mannsins.

Í umfjöllun Fréttablaðsins frá því í sumar kemur fram að maðurinn, sem er ekki talinn hafa hleyt af, en keyrði bíl ömmu sinnar, hafi ekki viljað tjá sig um málið í fyrstu, en hafi síðar komið hreint fram og lýst atvikum næturinnar í skýrslutöku hjá lögreglu.

Hann hafi sagt hinn manninn hafa beðið sig um að skutla sér á vettvang og þegar þangað var komið hafi þeir orðið varir við konuna og karlinn. Þá hafi maðurinn kallað til konunnar og því næst skotið úr byssu í átt til þeirra. Í kjölfarið hafi þeir keyrt á brott.

Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.