Gruna að ekki sé allt með felldu og senda meiri­hlutanum pillu: „Hvaða hags­muni er verið að vernda?“

Ása Berg­lind Hjálmars­dóttir, H lista, Hrönn Guð­munds­dóttir, B lista Vil­hjálmur Baldur Guð­munds­son, B lista, skrifa sam­eigin­lega grein á Sunn­lenska vegna stór­tæktra fyrir­ætlanir Heidel­berg Materials í Þor­láks­höfn.

Þau segja að nýjar upp­lýsingar birtust bæði i í­búum og kjörnum full­trúum sveitar­fé­lagsins Ölfuss á síðum Morgun­blaðsins um frekari á­ætlanir fyrir­tækisins.

„Á fundi Skipu­lags- og um­hverfis­nefndar 7. desember síðast­liðinn lá fyrir erindi frá Skipu­lags­stofnun þar sem beðið var um um­sögn um mat­stil­kynningu vegna mölunar­verk­smiðju í Þor­láks­höfn. Í beiðninni segir meðal annars að í um­sögninni skuli koma fram hvort sveitar­fé­lagið kalli á að fram­kvæmdin fari í um­hverfis­mat. Sem sagt, þarna gafst Sveitar­fé­laginu Ölfusi tæki­færi á að segja sína skoðun á því hvort það teldi fyrir­hugaða verk­smiðju Heidel­berg í Þor­láks­höfn þurfa að fara í um­hverfis­mat.“

„Fyrir fundinum lá til­laga að um­sögn þar sem listuð eru upp þau skil­yrði sem Ölfus setur fyrir­tækinu og bæjar­stjórn sam­þykkti á fundi sínum 24. nóvember. Auk þess bætti nefndin við lið sem í­trekaði sam­ráð við sveitar­fé­lagið þegar kæmi að hönnun byggingarinnar,“ skrifa full­trúarnir.

Full­trúar B lista Fram­fara­sinna sem sitja í Skipu­lags- og um­hverfis­nefnd fyrir hönd minni­hlutans lögðu fram eftir­farandi álit: „Talið er mikil­vægt að mölunar­verk­smiðjan fari í um­hverfis­mat, sökum um­fangs hennar miðað við sam­fé­lagið í Þor­láks­höfn.”

„Þegar fundar­gerð þess fundar var lögð fram á bæjar­stjórnar­fundi 15. desember til sam­þykktar, rataði álit bæjar­full­trúa Fram­fara­sinna ekki inn í um­sögnina sem Sveitar­fé­lagið Ölfus sendi til Skipu­lags­stofnunar. Sem sagt, Sveitar­fé­lagið Ölfus kallaði ekki eftir því að fram­kvæmdin færi í um­hverfis­mat.“

„Hvers­vegna beitir meiri­hlutinn sér ekki fyrir því að leiða fram allar upp­lýsingar?

Þessi af­staða meiri­hlutans vekur mikla furðu okkar bæjar­full­trúa í minni­hluta. Í fyrr­nefndum skil­yrðum sem bæjar­stjórn sam­þykkti segir meðal annars að bæjar­stjórn „á­skilji sér fullan rétt til að tryggja hags­muni sam­fé­lagsins við vinnslu málsins”, og að „ekki komi til greina að gefinn verði af­sláttur af al­mennum kröfum um hljóð­mengun, ryk­mengun og annað það sem valdið getur sam­fé­laginu ama”.

„Hvers vegna í ó­sköpunum fer bæjar­stjórn þá ekki fram á að verk­smiðjan fari í um­hverfis­mat og þar með í gaum­gæfi­lega skoðun sem tekur á málum er varða hags­muni íbúa og um­hverfis? Hvaða hags­muni er verið að vernda með þeirri af­stöðu? Hvernig geta í­búar tekið vel í­grundaða á­kvörðun þegar kemur að í­búa­kosningu, sem búið er að lofa en enginn veit hve­nær verður, þegar sveitar­fé­lagið beitir sér ekki fyrir því að leiða fram allar mögu­legar upp­lýsingar um á­hrif sem fram­kvæmdin kann að hafa?“

Full­trúar H og B lista sendu Skipu­lags­stofnun sér­á­lit sem hljóðar svo:

„Við viljum á­rétta það að full­trúar B og H lista telja fulla þörf á því að fyrir­hugaðar fram­kvæmdir við verk­smiðju Heidel­berg fari í um­hverfis­mat, sem hlýtur að teljast sjálf­sögð krafa frá bæjar­stjórn sem er búin að sam­þykkja það að: „á­skilja sér fullan rétt til að tryggja hags­muni sam­fé­lagsins við vinnslu málsins“ og að: „ekki komi til greina að gefinn verði af­sláttur af al­mennum kröfum um hljóð­mengun, ryk­mengun og annað það sem valdið getur sam­fé­laginu ama“.

Í 19. gr.laga nr. 111/2021 um Fram­kvæmdir sem kunna að vera háðar um­hverfis­mati segir:

„Til­kynningar­skyldar fram­kvæmdir sem til­greindar eru í flokki B í 1. við­auka við lög þessi skulu háðar um­hverfis­mati þegar þær eru taldar lík­legar til að hafa í för með sér um­tals­verð um­hverfis­á­hrif vegna um­fangs, eðlis eða stað­setningar skv. 2. við­auka”.

„Sveitar­fé­lagið Ölfus á að sjálf­sögðu að gera skýra kröfu um það til Skipu­lags­stofnunar að heildar­fram­kvæmdin hér í Þor­láks­höfn fari í um­hverfis­mat og standa þannig með hags­munum sam­fé­lagsins,“ að mati full­trúanna.

„Við teljum fulla þörf á því að fyrir­huguð verk­smiðja fari í um­hverfis­mat. Það er ekki hægt að horfa á fyrsta á­fanga verk­efnisins þegar á­kvörðun um mat verður tekin, heldur loka­punktinn sem er verk­smiðja á 65.000 m2 lóð í mikilli ná­lægð við í­búa­byggð og 40-60 m háum sílóum, allt að 8 talsins. Ekki er með sann­færandi hætti búið að sýna fram á það að mengun muni ekki koma frá verk­smiðjunni. Það þarf að okkar mati að meta betur ýmis form mengunar: sjón-, hljóð-, lyktar- og um­hverfis­mengun og greina með full­nægjandi hætti hvort efni sem eru skað­leg heilsu fólks muni leggja frá verk­smiðjunni, svo sem svif­ryk og gufur úr vinnslu. Vanda þarf sér­stak­lega til þessarar vinnu í ljósi mikillar ná­lægðar við í­búa­hverfi”.

„Þegar þetta er skrifað hefur Skipu­lags­stofnun ekki til­kynnt um á­kvörðun sína um það hvort fyrir­huguð mölunar­verk­smiðja Heidel­berg þurfi að fara í um­hverfis­mat, en sú á­kvörðun hlýtur að liggja fyrir fljót­lega. Við bindum miklar vonir við að stofnunin standi með hags­munum íbúa og um­hverfis og fari fram á um­hverfis­mat. Þar fyrir utan er alveg ljóst að það þarf að meta verk­efnið út frá sam­fé­laginu í stærra sam­hengi, bú­setu­gæðum og á­hrifum á önnur fyrir­tæki sem hér eru fyrir eins og á mat­væla- og vist­tengda starf­semi og mögu­lega upp­byggingu í ferða­þjónstu. Í upp­hafi skyldi endirinn skoða“ skrifa þau að lokum.