\"Þetta er athyglisvert. Nýju bankarnir hafa hagnast meira frá hruni en gömlu bankarnir frá 2003-2007 þrátt fyrir að nýju bankarnir séu einungis í því að mergsjúga Íslendinga en gömlu bankarnir voru með starfsemi um allan heim,\" segir Ólafur Arnarson hagfræðingur vegna samantektar Fréttablaðsins.
Í Markaðnum í Fréttablaðinu í gær birtust skrif þar sem segir að bankarnir þrír á Íslandi hafi nú skilað uppgjörum fyrir 2015.
\"Ekki geta þeir kvartað því hagnaður ársins er um 107 milljarðar. Hagnaðurinn frá hruni er 480 milljarðar, sem verður að teljast talsvert í hagkerfi, sem hrundi nánast til grunna, þar sem allur hlutabréfamarkaðurinn hvarf á einni nóttu – varð að núlli. Þetta er ekki slæmt í hagkerfi þar sem viðskiptavinir bankanna úr hópi einstaklinga lentu í vanskilum og bankarnir leystu til sín þúsundir íbúða. Þetta er nokkuð gott í umhverfi þar sem bankarnir leystu til sín hundruð, ef ekki þúsundir, fyrirtækja og atvinnufasteigna vegna skuldavanda eigenda, þegar skuldir tvöfölduðust og jafnvel þrefölduðust í hruninu. Þetta er ekki síst eftirtektarverður „árangur“ hjá stóru bönkunum þremur þegar horft er til þess að forverar þeirra, bankarnir sem féllu, högnuðust ekki um nema 450 milljarða á árunum 2003-2007, á fimm ára tímabili, sem hefur verið tekið sem dæmi um það hve „ruglið“ í íslenska fjármálakerfinu hafi verið orðið algert á þeim tíma, sem stundum er nefndur „gróðærið“,\" segir í Fréttablaðinu.
Fjöldi fólks hefur deilt þessum upplýsingum á facebook, enda þykja þær áhugaverðar.