Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot.
Lögregla framkvæmdi húsleit hjá manninum sumarið 2018 og við leit fundust 207 kvikmyndir og 198.119 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt.
Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi þann 30. júní síðastliðinn fyrir kynferðisbrot. Er sex mánaða fangelsisrefsing hans nú hegningarauki við þann dóm.
Auk þess að sæta sex mánaða fangelsi var manninum gert að greiða laun verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar, 458 þúsund krónur. Þá þarf hann að sæta upptöku á Corsair-borðtölvu með fjórum hörðum diskum, Lenovo Yogo-fartölvu og tveimur flökkurum.