Grímur ósáttur með ummæli Egils: „Vissi ekki að þú værir maður falsfréttanna“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason tjáði sig í gær um sigurgöngu íþróttafélagsins Vals, en körfuboltalið þeirra varð í gær íslandsmeistari karla eftir sigur á Tindastól. Egill varð harðlega gangrýndur fyrir ummæli sín.

Fréttablaðið fjallar um málið, en þar kemur fram að Valsmenn þurfi oft að sitja undir gagnrýni er snýr að fjárfestingu á leikmönnum og er því haldið fram að Valur eyði mikli meiri pening í slík mál en önnur lið. Sú umræða spratt aftur upp í gær eftir að félagið varð Íslandsmeistari.

,,Mér finnst það ekki smart hvernig Valur í skjóli auðs er að kaupa íþróttamenn í stórum stíl. Og ekki bara af því ég er fúll KR-ingur, í félagi sem ekki getur spilað þennan leik, heldur er þetta vont fyrir íþróttahreyfinguna.“ skrifaði Egill undir þráð er varðaði íslandsmeistaratitilinn.

Grímur Atlason sem er meðstjórnandi í stjórn körfuknattleiksdeildar Vals var ekki sáttur með þessi ummæli Egils og lét hann heyra það:

,,Veistu eitthvað um rekstur körfuboltaliða í dag? Veistu hvað ég og fjöldi annarra sjálfboðaliða leggjum á okkur til þess að reka deildina í Val? Þannig er þetta í öllum liðum. Gríðarlega dýr rekstur flestra liða í efstu deild - Njarðvík, Stjarnan, Tindastólll, Keflavík, ÍR, Grindavík, Þór Þorlákshöfn og já KR: þessi lið eru öll með 3-6 100% atvinnumenn. Óþolandi þessi mantra um að Valur sé öðruvísi en hin liðin í þessu efnum. Vissi ekki að þú værir maður falsfréttanna.“