Grillinu stolið af Gunnari Braga og Sunnu

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og kærasta hans, Sunna Marteins Gunnarsdóttir, samskiptastjóri MS, urðu fyrir því óláni að missa grillið sitt í hendur óprúttinna aðila á dögunum.

Sunna birti tilkynningu þess efnis í Facebook-hópi íbúa í Norðurmýri í gær, en Gunnar Bragi og Sunna eru búsett á Guðrúnargötu.

„Hæ kæru nágrannar – við lentum í því að grillinu okkar með gaskút var rænt af pallinum/svölunum okkar á Guðrúnargötu einhvern tímann sl daga – ef þið sjáið einmanna grill með gaskút í eftirdragi á ferli gæti það verið okkar svo endilega látið mig vita...,“ segir hún.

Svo virðist sem grillþjófar gangi lausir í Norðurmýrinni því annar íbúi segir að grilli hafi einmitt nýlega verið stolið af pallinum við heimili sitt á Guðrúnargötu.