Gríðarleg aukning í félagslega hjálp og fjárhagsaðstoð frá borginni

„Við höfum fundið verulega fyrir því síðustu mánuði, segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur um hvort auknar beiðnir berist um félagslega og fjárhagslega þjónustu undanfarna mánuði vegna faraldursins.

Linda ræðir við Heiðu Björg í þættinum 21 í kvöld á Hringbraut. „Við höfum í raun séð hundruðir fleiri umsókna um fjárhagsaðstoð. Ef við miðum við sama tíma á síðasta ári þá eru þetta um 30 prósent aukning. Eins líka með sérstakar húsnæðisbætur og við erum að sjá aukningu í tilkynningu til barnaverndar og auknar tilkynningar um heimilisofbeldi“, greinir Heiða frá og þá aukning á tilkynningum á því að barn gæti verið í hættu, þar sem tilkynnandi telur svo vera.

„Önnur sveitarfélög eru ekki að sjá þessa gríðarlegu aukningu eins og við erum að sjá“

Á milli fimmtán til sextán hundruð Reykjavíkingar fá fjárhagsstyrki til framfærslu miðað við sama tíma í fyrra þegar fjöldinn var á milli ellefu til tólfhundruð manns, segir Heiða. Framfærslan er rétt um 200 þúsund krónur fyrir einstakling og 300 þúsund fyrir hjón. Þessi hópur sem fær framsfærslu hefur ekki rétt til neinna annarra bóta, hefur t.d. lokið tímabili til atvinnuleysisbóta, er ekki á örorkubótum, til dæmis búið með réttindin sín stéttarfélögum, og á enga varasjóði eða bankabækur.

Hún segir að samfélagið hafi í raun breyst og það hafi gerst mjög hratt frá febrúarmánuði hve margir fleiri leiti eftir þjónustu Reykjavíkurborgar og það hafi verið lán að umsóknir um fjárhagsaðstoð var orðin aðgengileg á Netinu áður en veiran skall á.

„Það þarf að vera nægur mannskapur til að mæta þessum aukna fjölda sem er að koma inn í þjónustu núna og við höfum brugðist við með því að fjölga félagsráðgjöfum, við erum að fjölga til dæmi núna í barnavernd“, segir heiða um um þessar mundir sé verið að bæta við störfum 10 félagsráðgjafa til að sinna barnavernd í Reykjavíkurborg og Heiða bætir við: „Líka til að fá meiri sérhæfingu, á þessi heimilisofbeldismál og að við getum stutt börnin sem eru þar, inn á heimilunum og eins líka börn með erlendan uppruna, við þurfum sérhæfingu þar“.

Borgin hefur undanfarin þrjú ár sett viðbótarfé í málaflokkinn heiða segir að á rumum rúmum þremur árum hafið veirð settur rúmur milljarður til viðbótar í barnavernd.

„Það er í raun ný deild að verða til í barnaverndinni þar sem við erum auðvitað að bregðast við auknum fjölda barna vegna umsókna um alþjóðlega vernd og fleiri þannig flókin mál en þegar þessi mikla fjölgun tilkynninga er komin í vor vegna Covid þá sáum við í júní að við yrðum að fjölga starfsfólki“., segir Heiða og að auglýst hafi verið eftir þeim