Fræðikonan Gréta Bergrún Jóhannesdóttir kemur með mikilvægt innlegg í umræðuna um N1-mótið sem fram fór á Akureyri um helgina. Gréta átti sjálf barn sem spilaði á mótinu, en í dag og í gær hefur myndast mikil umræða vegna mála sem kom upp á mótinu.
Til að mynda sendi íþróttafélagið Þróttur frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að félagið hafi ákveðið að senda lið ekki í ákveðinn leik vegna slæmrar framkomu annars liðs.
Gréta vill þó líta á björtu hliðarnar og í stað þess að einblína á hið neikvæða telur hún upp nokkur falleg atvik sem áttu sér stað á N1-mótinu, sem og á Orkumótinu í Eyjum.
„- 12 ára markmaðurinn á N1 mótinu sem stappaði stáli í liðsfélaga sinn sem gerði sárgrætilegt sjálfsmark "þetta verður allt í lagi, þetta kemur fyrir, haltu áfram" og ég hugsaði vá, æðislegt, þvílíkur liðsandi.
- 10 ára drengurinn á Orkumótinu í Eyjum sem tapaði gegn okkur og missti algjörlega stjórn á skapi sínu kom í matsalnum til okkar manna og baðst afsökunar, sagðist bara hafa verið svo rosalega reiður. "já hann spjallaði bara við okkur, og leið betur" sagði minn maður reynslunni ríkari þar sem atvikið hafði setið í þeim. Allir lærðu eitthvað.
- Fótboltaforeldri að færa þreyttum þjálfara kaffi
- Litlu systkinin í litlu ferðatjaldi eltandi eldri bróðurinn og foreldrana vallanna á milli
- Mörg tár verið þurrkuð og sigrum fagnað, engan heyrði ég skamma barnið sitt, jú kannski einn sem hefði getað hysjað sjálfur upp um sig og lokað svo munninum. Þetta kemur, ÁFRAM, FLOTTIR, var mikill mikill meirihluti, jákvæðni, hrós, hvatning.
- Þjálfarinn frá mótliðinu sem kom og gaf okkar mönnum fimmu fyrir leikinn "geggjaðir Þórsarar, flottir"
- Alltaf er þakkað fyrir leikinn, sumir súrir aðrir glaðir
- Og kannski var það líka fallegt þegar ég stökk til og reif upp grisju úr veskinu til að einn mótherjinn gæti stoppað blóðnasir í miðjum leik. Bað hann reyndar að skora ekki mikið meira á okkar menn og hann brosti. Mamma hans líka sem var að troða þessu í nefið á honum svo hann gæti hlaupið inná aftur. Og þeir unnu því krakkakúlan skoraði.“
Gréta segir að svona megi áfram telja og segir hún að mörg falleg atvik séu minnisstæð í gegn um árin, þó að við og við eigi sér stað leiðinleg augnablik.
„Svona mætti áfram telja og mörg atvik eru minnisstæð gegn um árin þar sem við höfum verið með litlu landsbyggðarliði sem bæði foreldrar og þjálfarar hafa hrósað, hvatt áfram. Jú það hafa verið leiðinleg atvik en mikið sem það er leiðinlegt að láta það standa uppúr. Nokkrir stíflaðir foreldrar og einn leikur með tuddaskap virðast ætla að standa uppúr FRÁBÆRU N1 móti sem var 99% glimrandi gott.“
Þá fjallar Gréta um málið frá félagsfræðilegu sjónarhorni, en hún er félagsfræðingur, og segir ljóst að þessi mót skili sér í félagsþroska barnanna.
„Sem félagsfræðingur finnst mér afar áhugavert að fylgjast með mannlífnu á svona mótum, með gleðinni, reiðinni, tilfinningunum, vináttunni og öllu því sem börnin ganga í gegnum, og með foreldrum og fjölskyldum sem fylgja. Það segir sig sjálft að 2000 fótboltadrengir fæddir 2011 og 2010 verða ekki landsliðsmenn en allt sem þetta skilar börnunum í félagsþroska, félagslegum styrk stendur eftir. Ýmislegt má bæta, og foreldrar sem mega líta í eigin barm. En fávitar verða alltaf fávitar. Tölum frekar um alla hina,“