Greipur hjálpar útlendingum að forðast vandræðalegan misskilning á Íslandi: „Fólk er ekki að deyja“

Grínistinn Greipur Hjaltason kennir útlendingum óvenjulega íslenska siði á samfélagsmiðlum. Í nýlegu dæmi útskýrði hann að algenga kveðju Íslendinga.

„Ef þú ert í göngutúr á Íslandi er líklegt að fólk horfi á þig og segi: „Daginn,“ segir Greipur í myndskeiði á Instagram. Fyrir enskumælandi fólk hljómar það eins og dying, sem sagt að deyja.

„Fólk er ekki að deyja, heldur er einfaldlega verið að bjóða þér góðan dag,“ útskýrir Greipur á kómískan hátt.