Eitt nýtt smit af kórónaveirunni greindist í dag að því er kemur fram á covid.is en manneskjan sem greindist var ekki í sóttkví við greiningu hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Þá greindi almannavarnadeild einnig frá því í dag að tveir aðilar sem voru handteknir í gær hefðu reynst jákvæðir fyrir veirunni. Einstaklingarnir voru handteknir fyrir þjófnað á Selfossi og kom fljótlega í ljós að þeir hafi átt að vera í sóttkví þar sem þeir voru ný komnir til landsins.
Niðurstöður úr sýnatöku bárust lögreglu um hádegi í dag og eru fjórtán lögreglumenn hjá lögreglunni á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu nú í sóttkví. Ákvörðun um næstu skref verður tekin þegar niðurstöður liggja fyrir.
Búast má við að þau smit komi inn á covid.is á morgun og verða virk smit því að öllum líkindum sex talsins. Fyrir í daginn í dag hafði smit ekki greinst hér á landi í viku.