Grái herinn ætlar með mál þre­menninganna til MDE: „Við neitum að gefast upp í þessu máli“

For­svars­menn Gráa hersins hyggjast á­frýja dómi Hæsta­réttar Ís­lands frá byrjun nóvember á síðasta ári í málum þriggja liðs­manna hans til Mann­réttinda­­dóm­­stóls Evrópu í Strass­borg og hafa málin þegar verið send dóm­­stólnum.

Þetta kemur fram í til­­­kynningu frá Gráa hernum, enFrétta­blaðið greinir frá.

Í til­kynningunni segir jafn­­framt að með á­frýjuninni sé gerð úr­­slita­til­raun til að fá það viður­­kennt að nú­­gildandi skerðingar­­reglur al­manna­­trygginga­laga séu úr hófi og standist hvorki ís­­lensku stjórnar­­skrána né Mann­réttinda­sátt­­mála Evrópu.

„Við neitum að gefast upp í þessu máli,“ segir Helgi Péturs­­son, for­­maður Lands­­sam­band eldri borgara.

Mál þre­­menninganna, þeirra Ingi­bjargar Sverris­dóttur, Sig­ríðar J. Guð­­munds­dóttur og Wil­helms Wess­man, á hendur ríkinu, hafi að sögn Gráa hersins ekki snúist um fjár­­kröfur þeim til handa, heldur hafi til­­­gangurinn verið að freista þess að ná fram niður­­­stöðu, sem myndi neyða ríkis­valdið til að breyta reglu­­verki al­manna­­trygginga í það horf að það sam­ræmdist grund­vallar­­reglum réttar­­ríkisins.

Með dómnum hafi Hæsti­réttur hins vegar hafnað öllum rökum kær­endanna og gefið ríkinu grænt ljós á gildandi skerðingar­­reglu­­verk. Rétturinn viður­­kenni þó að um­­ræddu svig­rúmi séu ein­hver tak­­mörk sett, en láti þó ó­­­gert að upp­­­lýsa hvar þau mörk liggi og veiti því lítil sem engin svör við því sem fyrir hann hafi verið lagt.

„Við teljum ein­fald­­lega að Hæsti­réttur hafi ekki tekið af­­stöðu til okkar kæru­at­riða og förum því með málið á megin­­landið,“ segir Helgi Péturs­­son.

„Við ætlum að láta reyna á þetta alla leið,“ bætir Helgi við.