Aron Mímir Gylfason og Bjarki Valur Viðarsson sem standa að hlaðvarpsþættinum Götustrákar á Brotkast.is birta opið bréf til Þorsteins V. Einarssonar í Fréttablaðinu i dag.
Þorsteinn er kennari og kynjafræðingur og hefur lengi rekið út Instagram síðunni Karlmennskan.
„Undanfarið hefur borið á því að Þorsteinn V, aðstandandi Karlmennskunnar, sýni okkur athygli og kallar okkur meðal annars glæpamenn og annað gott. Þegar raunin er sú að neyslusaga okkar er frekar sorgleg en líka sjúklega fyndin, enda báðir í foreldrahúsum að nota eiturlyf að spila tölvuleiki í einangrun,“ skrifa Aron og Bjarki í Fréttablaðið.
„Við erum báðir óvirkir fíklar sem höfum náð tökum á lífum okkar og deilum meðal annars þessari reynslu með áhorfendum okkar. Í öllum þáttum okkar eða í framkomu útvarps höfum við talað gegn ofbeldi og glæpum, enda hvorugur okkar ofbeldismaður eða glæpamaður og aldrei verið slíkt.
Látum sannleiksgildi slíkra ásakana, sem mögulega jaðra við lögbrot, liggja á milli hluta. Við höfum mikinn áhuga á boðskap Þorsteins og teljum mikilvægt að sjónarmið hans og í raun allra annarra fái að heyrast,“ halda þeir áfram.
Þeir segjast hafa reynt að fá hann í þáttinn en segja þau boð hafi mögulega farið fram hjá honum.
„Ef Þorsteinn er virkilega að þessu til að reyna að dreifa boðskapnum og hjálpa öðrum karlmönnum að vera femínískir þá ætti hann að herja á hlustendur Götustráka.
Þess vegna setjum við hér á blað opið boðskort til hans, og hann boðinn velkominn í þáttinn. Vonumst til að sjá þig, Þorsteinn!“ skrifar strákarnir í lokinn.