Gosstöðvarnar verða rýmdar í dag: „Getur skapast mikil hætta“

Gosstöðvarnar í Geldingardölum verða rýmdar klukkan 17 í dag að sögn Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Vegna veðurs vill Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hvetja fólk sem leggur leið sína að eldgosinu í Geldingardölum í dag að yfirgefa eldgosasvæðið fyrir klukkan fimm í dag, þriðjudaginn 23. mars,“ segir í tilkynningu almannavarna.

Samkvæmt spám Veðurstofu Íslands er í dag suðvestlæg átt og mun draga smám saman úr vindi. Eftir klukkan 19:00 má gera ráð fyrir að vindur verði undir 3 m/s og því getur magn SO2 nálægt eldstöðinni farið yfir 9000 µg/m3.

„Því getur skapast mikil hætta fyrir fólk sem er þar á staðnum. Miðað við vindaspá næst gosstöðvunum er því líklegt að loftgæði í næsta nágrenni gosstöðvanna og að gasmengun frá CO2 í dældum og lægðum nálgist lífshættuleg gildi.“

Í tilkynningunni kemur fram að það sé því ráðlagt að halda sér uppi á hæðum og ekki fara niður í dali eða dældir í næsta nágrenni gosstöðvanna og halda sér innan stikuðu gönguleiðarinnar. Sjá heimasíðu Veðurstofu Íslands.