Frægi sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey var staddur á flöskuborði á Bankastræti Club um helgina. Sjónarvottur sem Hringbraut ræddi við sagði kappann hafa verið umvafinn íslenskum skvísum og auðsýnilega skemmt sér vel. Eftir því sem Hringbraut kemst næst sótti kokkurinn staðinn heim þrjú kvöld í röð.
Ramsey hefur undanfarna daga verið staddur hér á landi við tökur á sjónvarpsþættinum Uncharted fyrir National Geographic sjónvarpsstöðina. Fréttablaðið greindi frá því að Ramsey hefði smakkað og hrækt úr sér kæstum hákarli við tökur á þáttunum.
Vakið hefur athygli að Gordon Ramsay og Birgitta Líf Björnsdóttir, eigandi hins nýopnaða Bankastræti Club fylgja nú hvort öðru á samfélagsmiðlinum Instagram. Birgitta hefur áðursagst vilja nýja klúbbamenningu á Íslandi en á Bankastræti Club er meðal annars hægt að gerast meðlimur og er staðurinn hugsaður fyrir fólk sem vill leyfa sér þann lúxus sem lífið hefur upp á að bjóða.
Þá var Ramsay jafnframt staddur á karnivali á veitingastaðnum Sushi Social á föstudagskvöld. Ramsay er annálaður Íslandsvinur og hefur ítrekað sótt landið heim undanfarin ár. Samkvæmt heimildum Hringbrautar var Ramsay hrókur alls fagnaðar á Bankastræti um helgina og heimsótti staðinn á fimmtudagskvöld, föstudagskvöld og á laugardagskvöld. Ekki fylgir sögunni hvar kokkurinn horfði á úrslitaleik Englands og Ítalíu í gærkvöldi.