Göngu­ferð Hildar varð að frétt: „Reynir Trausta­son: HILDUR ER ORЭLAUS, ALLT NÖTRAR“

Hildur Lillien­dahl er ekki sátt við frétta­flutning Reynis Trausta­sonar, rit­stjóra Mann­lífs, af fyrir­spurn sinni á í­búa­hópi Mið­bæjarins í gær, miðað við Twitter og Face­book færslu sína.

Hildur lýsir málinu: „Skemmti­saga úr lífi konu á inter­netinu. Í gær var ég að ganga eftir Lauga­veginum í há­deginu, sá þúsund mótor­hjól, tók mynd og henti inn í hverfis­grúppuna mína á Face­book og spurði hvað væri að gerast. Ég veit eigin­lega ekki hvernig ég get lagt næga á­herslu á þetta en það gerðist bók­staf­lega EKKERT annað en að ég spurði ná­granna mína hvað væri að gerast. Ég lýsti engri skoðun á hjólunum eða til­finningu í garð þessa gjörnings.“

Hún segist ekkert hafa sagt um húsið sitt. Það hafi ekki stöðvað Reyni Trausta­son. „Hann stal frá mér tveimur myndum og henti í góða smellu­beitu. Svo deildi hann sorpinu sínu á Face­book og trig­geraði þar fólk enn frekar. Og þetta er út­koman. Allt í boði Mann­lífs og Reynis Trausta­sonar. Ofsa­lega eðli­legt sam­fé­lag sem við höfum komið okkur upp.“

Skemmtisaga úr lífi konu á internetinu. Í gær var ég að ganga eftir Laugaveginum í hádeginu, sá þúsund mótorhjól, tók...

Posted by Hildur Lilliendahl Viggósdóttir on Sunday, 2 May 2021