Önnur þjónusta en bráðaaðgerðir og krabbameinslækningar hefur verið sett á frest til að rýma fyrir sérstökum deildum vegna Covid – 19 veirunar, segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans í þættinum 21 í kvöld.
Í dag lögðust inn 7 einstaklingar vegna veikinda af völdum veirunnar og þar af einn á gjörgæslu. Á móti voru 3 útskrifaðir.
Allir sem eru sýktir eða í sóttkví og leggjast inn á spítalann eru í einbýlum og ekki í neinu samneyti innbyrðis.
Gríðarlegar tilfærslur hafa verið innan spítalans, bæði á rýmum, starfsemi og starfsfólki. Covid – 19 göngudeildin hefur nú eftirlit með 318 sjúklingum og á milli 30 til 40 læknar og hjúkrunarfræðingar sinna þjónustunni. Haft er daglegt eftirlit við þá sem eru í einangrun heima hjá sér eða annars staðar, sýktir af veirunni og lasnir og haft samband við þá sem eru veikir daglega.
Gert er ráð fyrir að hámark útbreiðslu veirunnar hér á landi verði á bilinu 7. til 15.apríl og segir Páll að gert verði ráð samkvæmt því að innlagnir verði þá á bilinu 40 til 110, allt að 30 manns gæti þurft gjörgæslu. Þá sé verið að vinna í að fá fleiri öndunarvélar til landsins.
Stjórnendur spítalans gera nú gríðarlegar ráðstafanir þegar útbreiðsla vírussins eykst, síðasta sólarhringinn greindust 80 manns jákvæðir hér á landi.
Breytingar verða gerðar á legudeildum umfram það sem nú þegar hefur verið gert, segir Páll. Þannig að þegar Deild A7 sem tekur eingöngu við Covid – 19 fyllist tekur deild A6 við sjúklingum og síðan aðrar deildir sem til heyra A-álmu spítalans, utan einnar deildar þar.
En eru nægar birgðir af öllu sem spítalinn þarf að eiga?
„Við erum að fara núna ítarlega yfir birgðastöðuna“, ítrekar Páll aðspurður hvort einhver hætta verði á að skortur verði á einhverju innan spítalans enda sé hætt við að stjórnendum yfirsjáist eitthvað af öllu því sem spítali þarf alltaf að eiga.
Gámarnir tveir sem hafa nýst til greininga á einstaklingum í sóttkví eða sem hafa greinst með veirunar munu heldur ekki nægja lengur og hefur sérstakt húsnæði norðan við spítalann verið rýmt til að stækka greiningarrýmið. Um helgina verður það tilbúið til notkunar og er þá hluti af Covid – 19 göngudeildinni.
Í dag lögðust inn 7 einstaklingar vegna veikinda af völdum veirunnar og þar af einn á gjörgæslu. Á móti voru 3 útskrifaðir.
24 einstaklingar í sóttkví þurftu innlögn á spítalann í dag en 12 er á móti batnað. Fólk í sóttkví leggst inn af misjöfnum ástæðum.