Allt stefnir í að Guðlaugur Þór Þórðarson muni bjóða sig fram gegn Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi flokksins í byrjun nóvember.
Í frétt RÚVer greint frá því að titringur sé innan flokksins. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur ekki verið haldinn í fjögur og hálft ár. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá síðasta fundi. Um tvö þúsund fulltrúar hafa seturétt á fundinum. Einungis þeir sem eiga sæti fá að kjósa.
Samkvæmt RÚV veit Guðlaugur að hann eigi eitt skot í byssunni og meti sem svo að nú sé tími kominn til að láta vaða.
Guðlaugur hefur ekki viljað staðfest framboðið en einn heimildarmaður RÚV staðfestir að hafa séð suma af hans nánustu stuðningsmönnum saman komna á heimili Guðlaugs í Grafarvogi í gærkvöld á staðsetningarforriti sem finna má á SnapChat.
Fylgismenn Bjarna Benediktssonar segjast tilbúnir í slaginn. Þeir furða sig þó sumir á að Guðlaugur hafi ekki farið hefðbundnari leið að framboði sínu - tilkynnt það formlega fyrr og farið í tilheyrandi fundarherferð um landið til að afla fylgis og treysta stöðu sína. Þeir segja líka að Bjarni eigi mikið inni, hans besta skeið sé enn ekki upprunnið.
Hægt er að lesa umfjöllun RÚV í heild sinnihér.
Djöfull er geggjað að þau hafi verið böstuð á snapmap pic.twitter.com/nKDdH5Dzga
— Kristján (@tyggjo) October 27, 2022