Sunnudagar eru snúðadagarnir okkar sem gleðja bæði auga og munn. Við fengum Berglindi Guðmundsdóttur matar- og sælkerabloggara hjá Gulur, rauður, grænn & salt til að deila með okkur sinni uppáhalds snúða uppskrift í tilefni dagsins. „Snúðahringurinn minn með vanilluglassúr er einn sá vinsælasti og minn uppáhalds. Hann hittir ávallt í mark og er tilvalinn til bjóða uppá með sunnudagskaffinu,“ segir Berglind. Aðspurð segir hún munnvatnið streyma á varir gesta þegar þessi er borinn á borð. Þetta er snúðahringurinn sem allir snúðaaðdáendur verða að prófa.

Snúðahringur með vanilluglassúr
310 g hveiti + um 70 g til að hnoða úr
3 msk. sykur
1 tsk. salt
2 ½ tsk. þurrger
125 ml vatn
60 ml mjólk
2 ½ msk. íslenskt smjör
1 egg
Fylling
3 msk. smjör, mjúkt
1 ½ msk. kanill
50 g sykur
Glassúr
130 g flórsykur
1 tsk. vanilludropar
2 msk. rjómi/mjólk (eða kaffi fyrir dásamlegt kaffikrem)
- Blandið saman í stóra skál hveiti (310 g),sykri, salti og þurrgeri.
- Hitið vatn, mjólk og smjör saman þar til smjörið hefur bráðnað. Þegar blandan er fingurvolg, hellið henni þá saman við hveitið. Bætið egginu út í og hnoðið deiginu upp úr afgangs hveitinu (70g). Látið í olíusmurða skál og leyfið því að hefa sig í um 10 mínútur.
- Látið deigið á smjörpappír og rúllið því út (ca 20 x 35 cm). Dreifið smjörinu yfir deigið og blandið því næst kanil og sykri saman og stráið yfir smjörið. Rúllið deiginu þétt upp og skerið niður i 11 hluta. Raðið snúðunum á olíusmurt form (ég notaði bökuform). Leggið rakan klút yfir deigið og leyfið snúðunum að hefa sig í um 60 mínútur. Athugið að þeir tvöfaldast í stærð og þurfa ekki að liggja alveg upp að hvor öðrum.
- Hitið ofninn á 175°c og bakið snúðana í um 25-30 mínútur eða þar til snúðarnir eru orðnir gylltir. Takið þá úr ofninum og leyfið að standa aðeins.
- Hrærið saman hráefnin sem fara í glassúrinn og hellið yfir. Gott er að hafa skál á borðinu með smá aukaglassúr. Verði ykkur að góðu!
*Allt hráefnið fæst í Bónus