Gómaður af lög­reglu og fær 230 þúsund króna sekt

Lög­reglan á Suður­landi hafði hendur í hári öku­manns á þjóð­vegi 1 á dögunum eftir að bif­reið hans mældist á 157 kíló­metra hraða.

Í skeyti lög­reglunnar kemur fram að lög­regla hafi verið við eftir­lit við Hellis­holt í sveitar­fé­laginu Horna­firði þegar maðurinn var stöðvaður. Að sögn lög­reglu gekkst maðurinn undir sektar­gerð að upp­hæð 230 þúsund krónur en auk þess var hann sviptur öku­réttindum í tvo mánuði.

Tveir aðrir öku­menn voru stöðvaðir í liðinni viku á yfir 140 kíló­metra hraða. Þeir eiga einnig von á dá­góðri sekt. Alls voru 37 öku­menn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í um­dæmi lög­reglunnar á Suður­landi í síðustu viku.