Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hrósar gleraugnaversluninni Sjáðu á Hverfisgötu hástert á Facebook síðu sinni í dag. Ástæðan er þessi:
„Vinur minn, ungur, bláfátækur og af erlendu bergi brotinn fór í verslunina í sjónmælingu með gömlu gleraugun sín. Sjónin var ekki upp á marga fiska en sjónglerjafræðingurinn skipti út annarri linsunni fyrir nýja og sjónin snarbatnaði eins og hendi væri veifað. Hann þurfti ekkert að greiða og væntanlega hefur fólkið í búðinni grunað að hann væri ekki borgunarmaður fyrir slíku.“
Stefán bætir við að hann hafi áður verslað við Sjáðu, en segist nú vita að starfsfólkið þar hefur hjarta úr gulli.
„Ég hef skipt við Sjáðu í eitt eða tvö skipti og veit að þetta er góð gleraugnabúð, en núna veit ég líka að þau hafa hjarta úr gulli. Mér finnst að þið ættuð öll að fara á Hverfisgötuna að kaupa ykkur gleraugu.“