Magnús Vignir Pétursson, kaupmaður og knattspyrnudómari í knattspyrnu og handbolta, lést síðastliðinn föstudag, frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.
Magnús hefði orðið í níræður á gamlársdag en hann er af mörgum talinn goðsögn í íþróttaheimi Íslands.
Magnús fæddist á gamlársdag 1932 og er sonur hjónanna Péturs J. Guðmundssonar, trillukarls í Skerjafirði, og konu hans, Sigurbjargar Jónu Magnúsdóttur, húsfreyju. Hann var einnig grjótharður stuðningsmaður Liverpool og mikill þróttari en hann kom að stofnun félagsins árið 1949. Hann var þekktur sem Maggi Pé í íþróttaheiminum. Æviágrip Magnúsar í Morgunblaðinu má sjá hér að neðan.
„Starfsferillinn hófst snemma því Magnús tók til starfa sem sendisveinn hjá Kaffi Höll átta ára gamall og varð síðan sendisveinn hjá Búnaðarbankanum. Hann var verslunarstjóri hjá KRON við Fálkagötu og síðar sölumaður hjá verksmiðju Magnúsar Víglundssonar. Árið 1965 stofnaði hann heildverslunina Hoffell og rak alla tíð og stofnaði með Valdimar syni sínum knattspyrnuverslunina Jóa Útherja í Ármúla árið 1999. Verslunin keypti síðar Hoffell og Magnús hætti kaupmennsku þegar Valdimar keypti hans hlut í Jóa Útherja fyrir um átta árum.
Magnús hóf ungur þátttöku í handknattleik og knattspyrnu með Fram og var síðar einn af stofnfélögum Þróttar 1949. Hann var einn af forvígismönnum skákæfinga hjá félaginu og um tíma formaður bridsdeildar. Hann var fljótlega farinn að þjálfa yngri flokka. Þá var hann formaður handknattleiksdeildar Þróttar í fjögur ár. Árið 1950 tók hann dómarapróf í knattspyrnu, varð landsdómari 1956 og alþjóðlegur FIFA-dómari 1965. Hann starfaði sem dómari í 30 ár og dæmdi víða um lönd. Magnús dæmdi einnig í handknattleik og var með alþjóðleg réttindi í þeirri grein.
Magnús hefur verið sæmdur gullmerki Þróttar, KSÍ, HSÍ, ÍBR og KRR fyrir störf sín. Hann var útnefndur heiðursfélagi Þróttar á síðasta ári. Hann var heiðursfélagi númer 1 í Liverpool-klúbbnum.
Eftirlifandi eiginkona Magnúsar er Eyþóra Valdimarsdóttir íþróttakennari. Börn þeirra eru Kristín, Jóhanna Björg og Valdimar Pétur.“
Magnús gaf ítarlegt viðtal um ferilinn við sjónvarp Þróttara fyrr á árinu sem er aðgengilegt hér að neðan.