Glúmur: „Verði mér á mistök mun ég fyrstur manna segja af mér“

Glúmur Baldvinsson, sem mun skipa oddvitasæti á lista Frjálslynda lýðræðisflokksins, fyrir komandi alþingiskosningar segir að mjög hafi skort á heiðarleika í íslenskri pólitík.

Það kom einhverjum á óvart í gær þegar tilkynnt var að Glúmur, sem er sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, tilkynnti að hann ætlaði að taka efsta sætið á lista nýstofnaðs flokks Guðmundar Franklíns Jónssonar, fjárfestis og fyrrverandi forsetaframbjóðanda.

Glúmur ræddi fyrirhugað framboð við Bítið á Bylgjunni í morgun. Þar var hann meðal annars spurður út í ástæður þess að hann ákvað að fara í framboð núna.

„Það er ágætis spurning, af hverju núna? Fyrir geðheilsu mína mætti ég segja. Ég var farinn að taka eftir því að ég er farinn að rífast svo við sjónvarpið eins og pabbi minn gerði áður en hann fór í pólitík,“ sagði Glúmur og bætti við að hann væri einnig farinn að rífa sig á Facebook. Þá væri kannski eins gott að nýta þessa krafta á réttum vettvangi.

Glúmur sagðist enn fremur vera þeirrar skoðunar að ungt fólk, nýbúið í lögfræðinámi til dæmis, hefði ekkert endilega mikið erindi á þing. „Menn verða að hafa lært eitthvað á lífið og átta sig á hvað það er sem það vill breyta, ef það vill þá breyta einhverju.“

Þegar hann var spurður út í hvers vegna hann hefði valið Frjálslynda lýðræðisflokkinn sagðist hann kunna við við stefnumál flokksins. Þá kvaðst hann þekkja stofnandann, Guðmund Franklín, sem setti sig í samband við hann. Glúmur bætti kíminn við að aðrir flokkar hafi ekki beinlínis beðið í röðum eftir því að fá krafta hans. Um sín helstu baráttumál nefndi Glúmur kvótakerfið og baráttuna gegn spillingu hér á landi. Þá væri nauðsynlegt að gefa jafnaðarmönnum valkost, þeir hefðu í raun ekkert húsaskjól lengur í pólitík. Aðspurður hvort Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn væri því jafnaðarmannaflokkur sagði Glúmur að markmið hans væri að færa hann í þá átt.

Glúmur hefur lofað því að verða heiðarlegur stjórnmálamaður nái hann kjöri í kosningunum í haust.

„Já, mér finnst skorta á það í íslenskri pólitík að vera heiðarlegur. Ég ætla ekkert að fara að breyta um karakter. Ef að ég kemst á þing þá lofa ég því að vera heiðarlegur. Verði mér á mistök þá mun ég fyrstur manna segja af mér,“ sagði Glúmur sem bætti við að þá menningu, að axla ábyrgð á gjörðum sínum, skorti algjörlega í íslenskri pólitík.

Viðtalið við Glúm má hlusta á hér.