Glúmur um Gunnar Smára: „Aldrei hef èg unnið fyrir mann sem hefur haft minni áhuga á launafólki og hvað þá að greiða því laun“

„Gunnar Smári er nú maður láglaunafólksins. Það er nýlunda. Það er ekki sami gamli ritstjóri minn Gunnar Smári sem fannst allt ókei að borga mér og blaðamönnum kollegum mínum ekki laun.“

Þetta sagði Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur og Evrópufræðingur, í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

Þar gerði hann frétt DV um deilur Gunnars Smára, stofnanda Sósíalistaflokksins, og Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambandsins, að umtalsefni. Hringbraut fjallaði meðal annars um málið í gær.

Gunnar Smári virðist ekki vera í miklum metum hjá Glúmi en þeir störfuðu saman í blaðamennsku á árum áður eins og Glúmur hefur áður komið inn á.

Í færslu sinni sagði Glúmur meðal annars:

„Aldrei hef èg unnið fyrir mann sem hefur haft minni áhuga á launafólki og hvað þá að greiða því laun. En þetta var fyrir 30 árum. Núna er hann annar maður. Frelsarinn endurfæddur! Því sannlega segi ég yður: Guð blessi sérhvert yðar sem trúir á hann.“

Glúmur skrifaði opið bréf til Gunnars Smára í aðdraganda kosninganna haustið 2021. Þá var Glúmur frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins en Gunnar Smári á fullu að reyna að koma Sósíalistum á þing.

Í bréfi sínu sakaði Glúmur Gunnar Smára um tækifærismennsku og sagði hann í raun hreyfast eftir því hvernig vindarnir blása; í upphafi hafi hann verið sósíaldemókrati, svo kapítalisti sem flaug um á einkaþotum og þegar kapítalisminn hafi brugðist honum hafi hann byrjað að boða sósíalisma.