Glúmur Baldvinsson, oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins í alþingiskosningunum í haust, segist vera genginn í Framsóknarflokkinn.
Eins og fram kom í viðtali við Glúm í Fréttablaðinu í fyrrahaust setti hann stefnuna á að fara í framboð í sveitarstjórnarkosningunum og gekk hann svo langt að stefna á borgarstjórastólinn.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Glúmur að hann og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hafi orðið vinir í síðustu alþingiskosningum og stóð jafnvel til að hann færi fram fyrir Flokk fólksins í borginni.
„Ég taldi nauðsynlegt fyrir Reykvíkinga að ég kæmist í borgarstjórn og ræddum við Inga þá hugmynd að ég yrði í einu efsta sæta flokksins í vor. Hún var afar jákvæð um hugmyndina. Við afréðum að hittast snemma í febrúar og að ég hefði samband til að negla fund. Svo hafði ég samband en ekkert svar. Og svo aftur og aftur en aldrei svar,“ segir Glúmur sem virðist svekktur út í Ingu.
„Lexían er sú að það er ekkert að marka Ingu Sæland. Hún gæti þess vegna reynt að sannfæra þig um að himininn væri blár og komist upp með það. En það sem verra er að Reykvíkingar misstu þar með af hefði orðið besti borgarstjóri aldarinnar. En ég bið hæstvirta kjósendur um að örvænta ekki. Því koma tímar koma ráð. Og ég genginn í Framsókn,“ segir hann að lokum.