Glúmur skorar á landsliðsmenn að fara í verkfall: „Hvers konar bull er þetta?“

Glúmur Baldvinsson, sem skipaði oddvitasætið á lista Frjálslynda lýðræðisflokksins í nýafstöðnum kosningum, er ekki ánægður með ummæli nýkjörins formanns KSÍ, Vöndu Sigurgeirsdóttur.

Mjög hefur verið rætt um meint ofbeldisbrot íslenskra landsliðsmanna í knattspyrnu að undanförnu en eins og kunnugt er var Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði landsliðsins til margra ára, ekki valinn í komandi verkefni í undankeppni HM. Aron hefur verið sakaður um brot fyrir ellefu árum, ásamt öðrum fyrrverandi landsliðsmanni.

Eftir að Vanda var kjörin formaður KSÍ í gær var hún spurð að því hjá RÚV hvort hún telji að þeir eða þau sem sökuð hafa verið um ofbeldisbrot megi leika með landsliðinu. Svar Vöndu var eftirfarandi:

„Ég er þeirrar skoðunar að ef mál eru hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs sem tók til starfa árið 2020, meðan mál eru til skoðunar, þá finnst mér að fólk eigi að víkja […] „En nákvæmlega þetta, með akkúrat þetta, þá finnst mér þetta: meðan mál eru til skoðunar, þá áttu ekki að leika.“

Glúmur er ekki ánægður með þessa byrjun á formennsku Vöndu og rifjar upp í færslu á Facebook-síðu sinni að afi hans, Björgvin Schram, hafi eitt sinn verið fyrirliði landsliðsins og síðar formaður KSÍ.

„Sumsé, þjálfari KSÍ má bara velja menn sem ekki er talað illa um. Hvers konar bull er þetta. Þjálfari KSÍ á að fá að ráða alla þá sem ekki eru dæmdir ofbeldismenn og nauðgarar og kynferðisafbrotamenn. Það er skiljanlegt. En að banna menn sem hafa orðið fyrir illu umtali er ekki bara gaga heldur Lady GAGA. Gerum greinarmun á dæmdum mönnum og mönnum sem hafa orðið fyrir illu umtali. Ég gæti sjálfur ekki þrifist í þessu samfélagi vegna ills umtals. Svo ég skora á landsliðsþjálfara að velja alla þá sem hann vill sem ekki eru dæmdir glæpamenn.“

Glúmur telur að ef menn leggi í vana sinn að hlusta á orðið á götunni kæmist enginn eitt né neitt. „Ef þjálfarinn ætlar að hlusta á svona bull ætti hann að hætta. Það myndi ég gera. Ég skora á íslenska landslið karlmanna í knattspyrnu að fara í verkfall.“