Glúmur Baldvinsson, frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins, fyrir komandi þingkosningar er sár út í Heiðar Örn Sigurfinnsson, varafréttastjóra RÚV, fyrir að biðja föður hans, Jón Baldvin Hannibalsson, ekki afsökunar í kjölfar umfjöllunar RÚV í febrúar síðastliðnum.
Eins og Hringbraut greindi frá í gær gagnrýndi Heiðar Örn afsökunarbeiðni Samherja í fyrrakvöld. Gagnrýndi hann það að ekki væri ljóst hver væri að biðjast afsökunar, á hverju væri beðist afsökunar á og þá væri ekki ljóst hvern væri verið að biðja afsökunar. Hægt er að lesa nánar um skrif Heiðars hér.
Glúmur greinir frá því á Facebook-síðu sinni að fyrir nokkrum mánuðum hafi hann beðið Heiðar Örn, sem varafréttastjóra RÚV, að biðja föður Glúms, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, afsökunar á að hafa ekki minnst einu orði á hann í frétt sem fjallaði um að 30 ár voru þá liðin frá sjálfstæði Litháens.
Eins og margir vita var það fyrir frumkvæði Jóns Baldvins að Ísland varð fyrsta ríkið til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna árið 1991. Nýtur Jón Baldvin töluverðrar virðingar í löndunum af þessum sökum og ber hann til dæmis heiðursorðu forseta Lettlands, Eistlands og Litháens.
Glúmur segist hafa beðið Heiðar um afsökunarbeiðni því fréttastjórinn sjálfur var í fríi þann dag.
„Þessi maður sem nú kvartar yfir skorti á afsökunarbeiðni sýndi mér fádæma hroka og taldi enga ástæðu til að biðjast afsökunar á því að sleppa að minnast á þann mann íslenskan sem viðurkenndi einn og sér sjálfstæði Litháa sem þökkuðu honum sérstaklega fyrir það með því að nefna götu í Vilnius Íslandsgötu og gleyma þætti Íslands aldrei. Og taka Íslendingum þar með ávallt opnum örmum í Litháen. Þökk einum manni sem RUV kaus að minnast ekki á í frétt sinni. Faðir minn Jón Baldvin bað ekki um afsökunarbeiðni. Ég gerði það. Nú vælir þessi sami maður hvurs nafn ég get aldrei munað um að fá ekki afsökunarbeiðni. Undarleg eru örlög manna á þessum síðustu og verstu tímum afsökunar.“