Glúmur rifjar upp sprenghlægilega sögu af föður sínum og Elísa­betu: „John Baldwin, what is the matter with you?“

Glúmur Bald­vins­son, sonur Jóns Bald­vins Hannibals­sonar fyrr­verandi utan­ríkis­ráð­herra Ís­lands, rifjar upp afar skemmtilega sögu af föður sínum í dag.

„Þessi saga í Mann­lífi að neðan er svo leiðin­­leg að ég finn mig knúinn til að segja eina skemmti­­legri,“skrifar Glúmur á face­book og deilir frétt frá Mannlífi. „Vissu­­lega var drottningin al­þýð­­leg en her­­toginn hinn mesti hroka­­gikkur og of­látungur. Faðir minn þá utan­­­ríkis­ráð­herra fékk það hlut­­verk að ferðast með drottningu og fræða um land og þjóð,“ skrifar Glúmur.

„Í upp­­hafi datt honum ekki til hugar að hún hefði snefil af á­huga á kot­­þjóðinni en þar kom hún honum svo á ó­­vart að hann hafði ekki undan að svara spurningum um allt frá upp­­hafi land­­náms, um hernað víkinga á Bret­lands­eyjum, til þorska­stríðanna og sögu þessara undar­­legu fram­­sóknar­fjóskalla sem öllu réðu. Þau óku svo á­­samt Filippusi her­­toga að Nesja­valla­­virkjun. Það var stinnings­haust­kuldi. Drottningin vildi ólm inní virkjun en Her­­toginn spurði: nennirðu þessu? Og sat kjurr í limmó­sínunni. Svo þau fóru án hans. Faðir minn var kvefaður allan þennan tíma með flensu. Og svo fór drottningar­­fólkið til síns heima,“ heldur hann á­fram

„Nokkrum mánuðum síðar var ein­hver utan­­­ríkis­ráð­herra­fundur í Lundúnum þar sem faðir minn gerði allt vit­­laust og seinkaði dag­­skrá með því að gera kröfu um yfir­­­lýsingar varðandi bann á kjarn­orku­­mengun Rússa í ballar­hafi og svo leiðindi varðandi skiptingu Kýpur. Varð hann þar með ó­­vin­­sælasti maðurinn á svæðinu. Því þetta röfl hans seinkaði dinnernum í Bucking­ham Palace,“ skrifar Glúmur.

„Svo fer kallinn á hótel og klæðir sig í leigðan smóking, black tie á há­­stéttarensku og tuxedo á amerísku, og tókst að rífa slaufuna eða hál­s­tauið er hann reyndi að hnýta það. Því þurfti hann að ganga hálf á­mót­legur inní höllina reynandi að láta á engu bera og halda slaufunni fastri beygjandi sig og bugtandi í átt að hennar há­­tign. Þegar faðir minn gekk svona á sig kominn fram fyrir hennar há­­tign sagði Elísa­bet: John Baldwin what is the matter with you? Are you still suf­fering from cold? Faðir minn svaraði hnípinn. No, your Royal Hig­hness it is the bloo­dy bow tie. Þá skipti engum togum að Elísa­bet smellir fingrum og allar hirð­­meyjar hennar há­tignar og breska heims­veldisins söfnuðust að föður mínum og drógu af­­síðis og saumuðu slaufuna saman. Gekk hann svo aftur hnar­reistur fram fyrir hennar há­­tign og hún segir: Oh John Baldwin. Much bet­ter to you see you now. Með al­þý­bros á vör.“

„Lýkur þar með þessari sögu. Sel ég hana miklu dýrar en ég keypti hana. Lengi lifi drottningin! Því hér endar saga drottninga. Því hún var drottning drottninga og sú eina sanna,“ skrifar Glúmur að lokum.