Glúmur Baldvinsson, sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram, opnar sig upp á gátt í viðtali í Fréttablaðinu í dag.
Glúmur var í framboði fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn í kosningunum í september og vakti athygli í kosningabaráttunni. Í viðtalinu í Fréttablaðinu ræðir Glúmur meðal annars um málefni fjölskyldu sinnar sem hafa verið í deiglunni að undanförnu.
„Æska mín var lituð hamingju og samstöðu innan fjölskyldunnar. Ekki bara æskan heldur allt lífið fram að fertugsaldri. Þá lék allt í lyndi,“ segir Glúmur meðal annars. Um mestu sorgina segir hann:
„Mín mesta sorg er missir systra minna. Snæfríðar sem lést óvænt í blóma lífsins. Og svo missir Aldísar sem hvarf inn í sorta veikinda sem hún afneitar og getur því ekki komið til baka og orðið sú skemmtilega systir sem var sólargeisli æsku minnar. Þær eru báðar horfnar mér. Árásir á föður minn og móður hafa náttúrlega valdið mér kvíða og þunglyndi, en ég hef reynt að bera höfuðið hátt,“ segir Glúmur.
„Ég þekki foreldra mína og veit sem varðhundur heimilisins frá byrjun að faðir minn er hafður fyrir rangri sök. Aldrei varð ég var við allan þann viðbjóð sem hann var sakaður um og trúðu mér: Hefði ég orðið var við slíkt sneri ég við honum baki. Ég var vakandi yfir öllu á mínu heimili, og kannski of mikið. Ég trúi því að systir mín og móðursystir standi í þessari aðför að föður mínum, ekki til að ná sér niður á honum, heldur móður minni. Þar spilar öfund stórt hlutverk. Sagan er djúp og löng og teygir sig langt aftur í tímann, en ég kæri mig ekki um að rekja hana hér.“
Viðtalið við Glúm má lesa í heild sinni hér.