Glúmur Baldvinsson mun skipa oddvitasæti fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn (X-O) í komandi alþingiskosningum. Hann mun annaðhvort taka sætið í Reykjavíkurkjördæmi suður eða norður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Frjálslynda lýðræðisflokknum.
Eins og glöggir lesendur vita er þar um að ræða flokk Guðmundar Franklíns Jónssonar, fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Lítið hefur heyrst frá Guðmundi vegna flokksins þar til nýverið. Glúmur er sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra og á því ekki langt að sækja þegar kemur að stjórnmálaferli.
Glúmur er með BA gráðu í stjórnmálafræði og hagfræði frá Háskóla Íslands, MSc gráðu í alþjóðasamskiptum og evrópufræðum frá London School of Economics og MA gráðu í alþjóðasamskiptum og alþjóðaviðskiptum frá University of Miami.
Glúmur hefur starfað hjá Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA, Sameinuðu þjóðunum, International Relief and Development í Washington, ICEAID, Þróunarsamvinnustofnun Íslands, Íslensku friðargæslunni, Tryggingastofnun ríkisins og sem fréttamaður á RÚV og Stöð 2 auk þess að hafa starfað sem leiðsögumaður og sjómaður á Íslandi.
Flokkurinn hyggst bjóða fram lista í öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum í haust. Í tilkynningu frá flokknum í byrjun árs sagðist flokkurinn ætla að berjast fyrir fullveldi landsins, beinu lýðræði, auðlindum í eigu þjóðar og gegn spillingu.