Glúmur Baldvinsson, frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins, vandar Gunnari Smára Egilssyni, stofnanda Sósíalistaflokksins, ekki kveðjurnar í opnu bréfi sem hann skrifaði til hans og birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.
Það er ljóst að kosningabaráttan er komin á fullt og verður hart barist um hvert einasta atkvæði. Margt bendir til þess að Sósíalistaflokkurinn muni koma mönnum á þing en eins og sakir standa eru sáralitlar líkur á að Frjálslynda lýðræðisflokknum takist það – að minnsta kosti ef marka má nýjustu skoðanakönnun MMR.
Í bréfi sínu sakar Glúmur Gunnar Smára um tækifærismennsku og segir hann í raun hreyfast eftir því hvernig vindarnir blása; í upphafi hafi hann verið sósíaldemókrati, svo kapítalisti sem flaug um á einkaþotum og þegar kapítalisminn hafi brugðist honum hafi hann byrjað að boða sósíalisma.
„Hvað gerirðu næst Smári þegar sósíalisminn bregst þér einsog hann brást tugmilljónum öðrum? Hvað næst? Og hvað þá?,“ spyr Glúmur í bréfi sínu sem má lesa hér að neðan.
"Opið bréf til sósíalistaforingja Íslands Gunnars Smára.
Kæri Smári,
Nú réðstu mig ungan á eitt blaða þinna sem öll fóru að endingu á hausinn. Voru það með skemmtilegri tímum ungdóms míns enda í liði með þér og Sigurjóni bróður, Agli Helga, Sigurði Má, Kalla Th., Jóni Óskari, Nonna, Spessa ofl. Þá sagðirðu mér að allir pólitíkusar væru skíthælar enda réðstu jafnt á þá alla. En þú sagðir mér þó að þinn maður væri Vimmi (Vilmundur heitinn Gylfason) sem þá var fallinn frá fyrir nokkru og að þú værir í grunninn sósíaldemókrati. Sem þýðir á íslensku krati. Svo skildu leiðir og það næsta sem ég spurði um þig var að þú varst orðinn kapítalisti og háttsettur í hirð Jóns Ásgeirs í Bónus. Eitt sinn hittumst við á kaffihúsi á því tímabili og ég lenti í þeirri skringilegu stöðu að verja Davíð Oddsson af öllum mönnum sem þú af ástríki varst með á heilanum í þá daga enda seppi Jóns Ásgeirs. Svo flaugstu um á einkaþotum herra þíns og fokkaðir öllu upp og nauðlentir við strætóskýli í miðborg Reykjavíkur en varst enn of stór til að taka næsta strætó heim. Og þegar kapítalisminn brást ekki bara þjóðinni heldur sér í lagi þér og þínum vonum um ríkidæmi þá alltíeinu boðarðu af ofsa sósíalisma í anda Trotskís og Leníns og Maós. Sósíalisma sem tortímdi og tortímir en tugum milljóna um alla veröld. Sósíalismi drap fleiri einstaklinga en nokkurt annað fyrirbæri á liðinni öld. En samt boðar þú sósíalisma í dag. Kenningu sem brást og spurði aldrei um eðli mannsins eða hvernig auður verður til til að skipta honum. Hvað gerirðu næst Smári þegar sósíalisminn bregst þér einsog hann brást tugmilljónum öðrum? Hvað næst? Og hvað þá?"