Glúmur Baldvinsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins, hefur komið til fleiri landa en meðal-Íslendingurinn.
Glúmur gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en tilefnið er spurning eldri konu sem spurði hann í gær hvaða land væri hans uppáhalds af þeim 74 sem hann hefur heimsótt.
„Spurningin kom flatt uppá mig en svarið lét ekki lengi á sér standa. Ítalía. Og af hverju? Jú þar sérðu fullt af lífsglöðum gamlingjum á götum, görðum og torgum úti. Kallar að spila boccia og kellingarnar að æpast á í gáskafullum æsingi . Ástríðan æpir til lífsins,“ segir hann og bætir við:
„Berið það saman við Ísland. Sjáum við gamalt fólk á götum úti? Nei. Ef svo væri yrði hringt í lögguna og það deyft með pillum og sent í rúmið. Gamla fólkið er lokað inná stofnunum í litlum herbergjum og helsta skemmtunin er bingó. Á Ítalíu fær gamla fólkið að lifa til hinsta dags en á Íslandi er það tekið úr umferð löngu fyrir dómsdag.
Þess vegna ætla ég að deyja á Ítalíu.“