Glúmur kjaft­stopp eftir fréttir RÚV: „Hvað er ekki minnst á í fréttinni og við hvern er ekki talað?“

Glúmur Bald­vins­son, sonur Jóns Bald­vins Hannibals­sonar, fyrr­verandi utan­ríkis­ráð­herra Ís­lands, segist vera kjaft­stopp eftir að hafa horft á frétt RÚV um sjálf­stæði Lithá­ens, í Face­book færslu sem hann birtir í kvöld.

„Ég er kjaft­stopp. Horfði á frétt RUV sem fjallaði um þakk­læti Lithá­ensku þjóðarinnar til okkar Ís­lendinga fyrir að hafa fyrst þjóða viður­kennt sjálf­stæði Lit­háa fyrir akkurat 30 árum. Í fréttinni segir að sér­hvert manns­barn í Litháen sé ævarandi þakk­látt Ís­lendingum enn þann dag í dag,“ skrifar Glúmur.

„En hvað er ekki minnst á í fréttinni og við hvern er ekki talað? Jú manninn sem fyrir okkar hönd viður­kenndi sjálf­stæði Lit­háa. Ekki orð um þann mann! Hvílíkur dóna­skapur og hneisa. RUV skammastu þín.“

Líkt og al­þjóð ef­laust man eftir var það Jón Bald­vin Hannibals­son, faðir Glúms, sem tók á­kvörðun um það sem utan­ríkis­ráð­herra Ís­lands á þeim tíma að Ís­land skyldi viður­kenna sjálf­stæði Lithá­ens. Hefur Jón Bald­vin allar götur síðan verið einna vin­sælastur manna í Litháen og haldið fjölda fyrir­lestra um af­stöðu Ís­lands á sínum tíma.

Undan­farin ár hefur þó Jón Bald­vin frekar komist í kast­ljós fjöl­miðla vegna á­sakana á hendur honum um kyn­ferðis­brot. Mála­ferli hafa staðið yfir í héraðs­dómi Reykja­víkur undan­farna daga, þar sem Jón Bald­vin hefur stefnt þeim Al­dísi Schram, dóttur sinni og Sig­mari Guð­munds­syni, út­varps­manni á Rás 2 vegna um­mæla um meint kyn­ferðis­brot hans og meinta frelssi­sviptingu dóttur sinnar.

Ég er kjaftstopp. Horfði á frétt RUV sem fjallaði um þakklæti Litháensku þjóðarinnar til okkar Íslendinga fyrir að hafa...

Posted by Glumur Baldvinsson on Thursday, 11 February 2021