Glúmur Baldvinsson, frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins, fyrir komandi Alþingiskosningar svarar Guðmundi Andra Thorssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, fullum hálsi á Facebook-síðu þess síðarnefna.
Til orðaskipta kom við færslu Guðmundar Andra þar sem hann tjáði sig um nýjar samskiptareglur í Facebook-hópi Samfylkingarinnar. Glúmur skrifaði athugasemd við færsluna sem Guðmundur Andri svaraði með þessum hætti: „Glúmur, var ég ekki að lesa að þú sért að fara í framboð fyrir eina trumpista landsins (já eða hinn)?“
Trumpistinn sem Guðmundur Andri vísar í er Guðmundur Franklín Jónsson, stofnandi Frjálslynda lýðræðisflokksins. Glúmur svaraði Guðmundi Andra fullum hálsi og lét Samfylkinguna í heild raunar heyra það.
„Þetta sannar eitt sem kannski var ekki umdeilt að þú ert læs. Að öðru leyti þá er ég að fara fram sem krati sem ætlar að berjast fyrir endurheimt á virðingu alþýðu fólks og endurheimt á sjónarmiðum fólks og auðlindum alþýðu fólks sem var stolið af örfáum mönnum.
Eitthvað sem að ykkur í Samfemínistafylkingunni dettur ekki í hug að berjast fyrir. Á meðan þú og þið víkið fyrir últrafemínstunum sem halda að kynrænt sjálfstæði og grænkerafæði til handa öllum muni bjarga heiminum og stöðva hlýnun jarðar á meðan bækur Astrid Lindgren og sögur um Harry Potter eru brenndar á báli þá vil ég skipta máli fyrir fólk sem skiptir máli.“
Glúmur spurði svo hvað það er sem skiptir máli fyrir alþýðu fólks. „Grænmeti og bráðnun jökla sem aldrei voru jöklar? Guðmundur Andri Thorsson. Ég met þig sem rithöfund en ég trúi ekki að þú sjáir ekki það sem ég sé. Samfylkingu fólks sem hefur misst sjónar á því sem skiptir alþýðu manna máli. Misskiptingu auðs í samfélaginu og rotið spillt kvótakerfið framleitt í kjördæmi formanns þíns.“
Glúmur endaði svar sitt á þessum orðum:
„En nei, þá röflið þið um mikilvægi grænkerafæðis og brennið vondar bækur. Herra Thors. Þú getur gert betur en þetta. Raddirnar hljóta að bergmála í garðinum. Hvað heldurðu að raddirnar þeirra sem sóttu sjóinn og börðust fyrir bættum hag og tryggðu okkur forðum kjörin segi nú? Við verðum að hlusta á raddirnar í garðinum.“