Glúmur ekki sáttur: „Enn einn liðurinn í að útrýma einkabílnum“

„Fagnaðartíðindi fyrir fólk sem hefur ekki efni á nýjum bílum eða Teslu og Ferrari. Og jólaglaðningur,“ segir Glúmur Baldvinsson, fyrrverandi oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins, á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir Glúmur frétt Stöðvar 2 í gærkvöldi að umtalsefni en í henni kom fram að mun erfiðara verði að koma ökutækjum í gegnum skoðun á næsta ári.

Ný reglugerð um ástand þeirra verður hert til muna og þá verður vanrækslugjald hækkað. Vanrækslugjald hækkar úr 15 þúsund krónum í 20 þúsund krónur. Í fréttinni kom fram að þá verði sett akstursbann á bifreiðar ef olía eða eldsneyti lekur eða hemlaljós eru biluð. Áður þýddi það að ökutæki fengu endurskoðunarlímmiða.

Glúmur segist telja að markmið þessara breytinga sé að þrengja enn frekar að einkabílnum og gera „litla fólkinu“ auðveldara að stunda göngur og hjólreiðar.

„Af hverju leyfum við ekki aftur hestvagna í borginni? Af hverju ríðum við ekki niður Laugaveginn? Þetta elítulið þarna í fílabeinsturninum heldur að allir hafi bara efni á því að lepja kaffi og deila og drottna í þröngum latex. Þetta pakk hefur engan skilning á lífi hins venjulega manns,“ segir Glúmur og bætir við:

„Þetta er bara enn einn liðurinn í að útrýma einkabílnum í helfrosnu svörtu vetrarlandi.“