„Nú lenti ég illa í því lagsmaður,“ segir Glúmur Baldvinsson í kostulegri færslu á Facebook-síðu sinni sem birtist í gærkvöldi.
Glúmur lýsir því að hann hafi í gær þurft að hafa samband við bankann sinn til að ganga frá áríðandi málum.
„En þeir hvorki svara síma né ansa netpóstum lengur. Svo ég þurfti að hefja netspjall. Þar fékk ég samband við með öllu rænulausan róbót,“ segir Glúmur sem liggur sjaldnast á skoðunum sínum.
„Eftir fimm mínútna árangurslaust samtal við þetta heilalausa vélmenni og fífl fauk svo illa í mig að ég kallaði það öllum illum nöfnum í feitletruðum HÁSTÖFUM og sagði því aldrei að þrífast og heimtaði lifandi homo erectus og sapiens eða vitiborinn uppréttan mann samstundis. Sumsé ég heimtaði ráðgjafa,“ segir hann en ætla má að svipurinn sem kom á hann í kjölfarið hafi verið kostulegur.
„Þá kom á daginn að ég var að tala við lifandi, uppréttan, ráðgjafa allan tímann. Það reyndist erfitt að ljúka þessu samtali á góðu nótunum. Frekar óheppilegt allt saman.“