Glúmur Baldvinsson, sonur Bryndísar Schram og Jóns Baldvins Hannibalssonar, birtir á Facebook skjáskot af skilaboðum frá konunni sem kærði föður hans fyrir kynferðisbrot.
„Saklaus móðir mín fékk hrottalegan póst frá konunni sem sakar föður minn um rassastroku utanklæða og nú heldur áfram fyrir dómstólum. Pósturinn var svo illgjarn og beindist ekkert að föður mínum heldur móður. Sjá skjáskot fyrir neðan af skrifum hennar sem ég fann með hjálp vinar,“ skrifar Glúmur.
„Pósturinn var svo illgjarn og beindist ekkert að föður mínum heldur móður.“
Skjáskotin af skilaboðnum setur hann svo í ummæli við færslu sína.
„Ég er svo reiður. Og svo sagði RUV ekki einu sinni frá því að JBH hefði verið sýknaður. Ekki orð“ skrifar Glúmur einnig.
Mynd/Facebook
Mynd/Facebook