Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingkona Viðreisnar spurði í gær á Alþingi hvort sanngjarnt væri að lífeyrisþegar og launþegar í landinu taki á sig tap gamla Íbúðalánasjóðs- ÍL sjóðs.
Þorbjörg beindi fyrirspurn sinni til Guðmunds Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra og spurði hvort hann styðji fjármálaráðherra í því að færa skuldir Íbúðalánasjóðs yfir á lífeyris-og launþega í landinu.
Hún segir hinn svokallaða sparnað felats í því að aðrir greiði reikninginn fyrir ríkið. Að lífeyrissjóðir gefi eftir fjárhæðir og taki skuldbindingarnar í fangið.
„En gleymum því ekki að sjóðirnir eru almenningur í landinu,“ sagði hún.
Í samningaviðræðum
Guðmundur Ingi svaraði Þorbjörgu og sagði um að ræða gríðarlegar fjárhæðir sem almenningur er í raun að borga miðað við hvernig kerfið er í dag. Brýnt væri að leysa málið, það væri fjármálaráðherra að gera með samningaviðræðum við lífeyrissjóðina.
„Hvort almenningur borgar þetta með þeim hætti sem núna er að gerast eða að lífeyrissjóðirnir upp að einhverju marki taki þetta á sig - það er kannski verið að tala um að peningarnir, þeir eru að koma hvort heldur sem er, úr svipuðum vösum.“
Þorbjörg svaraði og sagði fráleitt að tala um samningaviðræður við ríkið og sagði Bjarna hafa hótað lífeyrissjóðunum.
„Er sanngjarnt að lífeyrisþegar og launþegar í landinu beri þennan kostnað, að það sé gengið í sparnað almennings með þessum hætti? Að ríkið geti breytt lánskjörum sér í hag, þegar reikningurinn er farinn að líta illa út og að almenningur eigi að taka reikninginn fyrir pólitísk mistök stjórnvalda?“