Gunnar Smári Egilsson, einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, fer hlýjum orðum um Svavar Gestsson, fyrrverandi þingmann og ráðherra, sem lést í gær, 76 ára að aldri.
Gunnar Smári rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar hann hitti Svavar fyrst, en það var kvöld eitt undir miðnætti í desember árið 1978 á bílaplaninu fyrir aftan Alþingishúsið.
„Það kyngdi niður snjó og við Arnaldur vinur minn vorum að koma af einhverju slarki í miðbænum, 17 ára slánar, á leið vestur í bæ og komum að Svavari þar sem hann var að reyna að koma bíldruslunni sinni í gang, hafði verið að vinna í Þórshamri að því mig minnir,“ segir hann í pistli á Facebook.
Á þessum tíma var Svavar 34 ára, svo til nýkjörinn á þing eftir að hafa verið ritstjóri Þjóðviljans lengi vel og auk þess orðinn viðskiptaráðherra. Gunnar Smári segir að Svavar hafi líklega verið róttækasti sósíalistinn sem sat þá á þingi.
„Við Arnaldur buðum fram aðstoð okkar, ýttum unga ráðherranum í gang og hann bauð okkur að launum far heim. Við settumst báðir aftur í eins og þægir piltar. Svavar rétt þá gírhöndina aftur fyrir öxlina og sagði: Slakið jurt strákar. Þetta fannst okkur kostulegt slangur og hlógum þegar við gáfum manninum sígarettu. Svo reyktum við saman, töluðum um pólitík, sátum kappklæddir í bíldruslu sem dröslaðist gegnum snjóinn án þess að geta hitað upp farþegarýmið, það þéttist gufa á gluggana, snjórinn féll úti eins og á jólakorti.“
Gunnar Smári bendir á að tímarnir í dag séu aðrir, en þarna var enginn ráðherrabíll eða bílstjóri. Hann segir að eftir kosningasigur A-flokkanna vorið áður hefðu breytingar legið í loftinu.
„Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafði fallið í fyrsta sinn sama vor. Það var að vora í vinstrinu, og Svavar var einn af vorboðunum. En þetta vor endaði snöggt, var sorglega stutt og því fylgdi ekkert sumar. Fram undan var ekki sigur vinstrisins, sósíalismans eða verkalýðsbaráttunnar heldur þvert á móti, fjörutíu ára kaldur niðurlægingartími sem okkur auðnast vonandi að brjótast út úr á næstu misserum.“
Gunnar Smári segir að hann hafi hitt Svavar nokkrum sinnum eftir þetta, enda Gunnar Smári í blaðamennska á meðan Svavar var í pólitík.
„Ég heimsótti hann fyrir nokkrum misserum og sagði honum frá hvaða hugsanir lágu að baki stofnun Sósíalistaflokksins, taldi gott að hann vissi af því. Og þótt ég hafi oft dáðst af mælsku hans og framgöngu þá hugsaði ég til ráðherrans unga á biluðu druslunni þegar ég frétti af andláti hans.“