„Ég gleymi aldrei deginum sem hún kvaddi og líka aldrei deginum sem hún vaknaði til lífsins,“ segir Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur og frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins fyrir komandi kosningar.
Glúmur minntist systur sinnar, Snæfríðar Baldvinsdóttur, með hlýjum orðum á Facebook-síðu sinni í gær en þá hefði hún fagnað 53 ára afmælisdegi sínum. Snæfríður, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram, lést þann 19. janúar 2013. Glúmur gleymir seint deginum sem hún fæddist en tæp tvö ár voru á milli þeirra.
„Þann átjánda maí 1968 fór ég með frænku minni Ásdísi Schram á leikvöll í Sörlaskjólinu. Þegar við snerum aftur heim til afa og ömmu í Sörlaskjóli 1 var sjúkrabíll fyrir framan húsið. Og þegar við gengum upp tröppurnar þurftum við að víkja fyrir mönnum berandi sjúkrabörur niður. Á börunum lá mamma mín. Ég þá nítján mánaða gleymi ekki óttanum sem greip mig svo ég hljóp grátandi á eftir þeim en amma greip mig í fang sér og huggaði mig sagði að þetta væri nú alltílagi því nú myndi fæðast annað barn sem yrði systkini mitt.“
Glúmur segir að hann hafi róast í fanginu á ömmu sinni og óttinn vikið fyrir tilhlökkun.
„Og svo síðar þennan sólríka dag kom Dídí systir mín í heiminn. Hún var skírð Snæfríður en af því ég gat illa borið fram orðið systir sagði ég bara dídí og því festist það viðurnefni við hana. Hefði Dídí systir lifað væri hún 53 ára í dag. Og af því hún fæddist á þessum degi er átjándi maí mér heilagastur allra daga. Ég gleymi aldrei deginum sem hún kvaddi og líka aldrei deginum sem hún vaknaði til lífsins. Ég mun aldrei gleyma þér mín fagra Dídí systir. Þú varst ljósið og tærust okkar allra. Og fallegustu skilaboð sem heimurinn fékk.“