Þorgeir Ástvaldsson, hinn landskunni útvarpsmaður, tónlistarmaður og skemmtikraftur er gestur í Mannamáli hjá Sigmundi Erni í kvöld, fimmtudag. Útvarpsröddina þekkja allir landsmenn en Þorgeir var meðal helstu frumkvöðla í að nútímavæða íslenskt útvarp; var einn af drifkröftum stofnunar Rásar 2, tók þátt í Stjörnuútvarpsævintýrinu og hefur verið við hljóðnemann á Bylgjunni undanfarna áratugi. Hins vegar varð áfengisnotkun Þorgeirs honum fjötur um fót og varð til þess að hann á endanum gafst upp á drykkjunni. Þó rifjar Þorgeir upp í þættinum skondið tilvik þegar hann gleymdi viðmælandanum sem hann hafði boðað til sín. Eftir Tekíla fyllerí, var Þorgeir mættur í útsendingu en gleymdi heinlega Svavari Gests stjórnmálamanni sem var mættur í viðtal til hans og beið frammi þar til þættinum lauk.
Mannamál er á dagskrá á Hringbraut Kl.20 í kvöld.