Glæsi­höll Skúla Mogen­sen komin í hendur Arion banka - Sjáðu myndirnar

Eitt glæsi­legasta ein­býlis­hús landsins, fast­eignin við Hrólfs­skála­vör 2, er komið í eigu Arion banka en húsið var áður í eigu Skúla Mogen­sen, stofnanda og fyrr­verandi for­stjóra WOW air. Greint er frá þessu á vef Smart­landsins.

Húsið sem um ræðir er hannað af Ste­ve Christer og Mar­gréti Harðar­dótt­ur hjá Stu­dio Granda. Gríma Björg Thoraren­sen, unnusta Skúla, og Selma Ágústs­dóttir sáu um innan­húss­hönnun þess.

Húsið var byggt árið 2008 og er það 630 fer­metrar að stærð og á þremur hæðum. Hefur það meðal annars að geyma tvo heita potta, fjöl­skyldu­her­bergi, gufu og líkams­ræktar­að­stöðu svo fátt eitt sé nefnt. Þá eru allar inn­réttingar í húsinu sér­smíðaðar.

Ó­víst er hvað Arion banki hyggst gera með þetta ein­staka hús en það er enn til sölu sam­kvæmt fast­eigna­vef Morgun­blaðsins.

Hér má svo sjá sérstaka heimasíðu sem var sett upp í tengslum við sölu hússins.