Gjaldtaka vari ekki lengur en 30 ár í senn

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp sem á að auka verulega fjármagn til vegaframkvæmda og mæta mikilli þörf fyrir fjárfestingar í samgöngum, bæta umferðaröryggi og stytta og bæta vegtengingar milli byggða. Áætlað er að samvinnuverkefnin geti skapað allt að 4.000 ársverk. Undirbúningur frumvarpsins hefur staðið lengi og er í samræmi við tillögu að samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034.

Í frumvarpinu er heimild til að fjármagna samvinnuverkefnin með gjald­töku af umferð á þeim stöðum sem verkefnin ná til, þ.e.a.s. Sunda­braut, tvö­földun Hval­fjarð­ar­ganga, Axar­vegur og ýmsar fram­kvæmdir við hring­veg­inn.

„Gjald­taka vegna notk­unar til­tek­ins mann­virkis skal ekki hefj­ast fyrr en fram­kvæmd lýkur og opnað er fyrir almenna umferð,“ segir í frumvarpinu. „Gjald­taka fyrir hvert mann­virki skal ekki standa lengur en í 30 ár.“