Gísli varð bráðkvaddur á Ítalíu: „Einstök persóna í bestu merkingu þess orðs“

„Gísli var ekki bara frábær vísindamaður. Hann var einnig einstök persóna í bestu merkingu þess orðs,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, í minningargrein um Gísla Arnór Víkingsson sem birtist á vef stofnunarinnar í dag.

Gísli, sem var starfsmaður Hafrannsóknastofnunar til áratuga var bráðkvaddur á Ítalíu þann 18. júlí síðastliðinn þar sem hann var staddur í fríi með fjölskyldu sinni. Útför Gísla fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 12. ágúst kl. 13 og verður starfsstöð Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði lokuð frá hádegi þann dag.

Virtur fræðimaður

Gísli lauk líffræðinámi frá Háskóla Íslands árið 1979, cand. scient gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1985 og varði doktorsritgerð sína frá Háskólanum í Tromsø árið 2016. Doktorsritgerð hans fjallaði um langtímabreytingar í útbreiðslu, stofnstærð og fæðuvistfræði skíðishvala á hafsvæðinu umhverfis Ísland og aðliggjandi svæðum og hvort þær breytingar væru afleiðingar loftslagsbreytinga.

Þorsteinn segir að Gísli hafi hafið störf hjá Hafrannsóknastofnun árið 1986 en á þeim tíma var verið að auka mjög við hvalarannsóknir sem krafðist fleiri líffræðinga. Fékk Gísli það verkefni árið 1998 að stýra hvalarannsóknum stofnunarinnar sem hann gerði með miklum sóma allt til dauðadags, að sögn Gísla.

„Gísli vann því að hvalarannsóknum allan sinn starfsferil hjá Hafrannsóknastofnun og ávann sér bæði virðingu og traust samstarfsmanna sinna, hvort heldur sem var innanlands eða erlendis.“

„Einstök persóna“

Þorsteinn segir að sem helsti sérfræðingur Íslands um hvali hafi Gísli verið fulltrúi Íslands í mörgum nefndum og ráðum er fjölluðu um hvali og hvalveiðar. Þá var hann afkastamikill mjög við að koma niðurstöðum rannsókna á framfæri, bæði innanlands sem og í ritrýndar greinar í vísindatímaritum. Þannig kom hann að skrifum á 129 ritrýndum greinum, skrifaði yfir 40 bókarkafla bæði á ensku og íslensku, tugi ráðstefnupappíra auk annarra skrifa.

„Gísli var ekki bara frábær vísindamaður. Hann var einnig einstök persóna í bestu merkingu þess orðs. Hann var hjartahlýr, skilningsríkur, stuðningsríkur, lífsglaður, húmoristi og átti mjög gott með að vinna með fólki enda leituðu margir til hans um ráð og leiðsögn.“

Þorsteinn bendir á Gísli hafi haft fleiri áhugamál og til dæmis verið mikill tónlistarmaður. „Af öllum þeim tríóum, kvartetum og hljómsveitum sem hann spilaði með þekkjum við samstarfsmenn hans hann best af því að spila með Hafróbandinu, eða húsbandinu sem tróð reglulega upp á samkomum starfsmanna.“

Þorsteinn segir að það skarð sem Gísli lætur eftir sig hjá Hafrannsóknastofnun sé stórt og missir stofnunarinnar og samstarfsfólks Gísla sé mikill. Minningin um góðan félaga lifi í hjörtum allra.

„Eiginkona Gísla var Guðrún Ögmundsdóttir, alþingismaður og félagsráðgjafi. Hún lést á gamlársdag 2019 eftir erfið veikindi. Börn þeirra eru Ögmundur Viðar Rúnarsson og Ingibjörg Helga Gísladóttir. Samstarfsmenn Gísla hjá Hafrannsóknastofnun votta Ögmundi, Ingibjörgu og öðrum aðstandendum innilegrar samúðar,“ segir Þorsteinn að lokum.