Gísli: „Suma daga skammast ég mín fyrir að vera Íslendingur“

Gísli Rafn Ólafsson, sem mun skipa 2. sætið á lista Pírata  í suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar, segist suma daga skammast sín fyrir að vera Íslendingur.

Gísli stígur fram á Twitter þar sem hann vekur máls á stöðu tíu hælisleitenda sem hafa verið sviptir réttindum sínum vegna þess að þeir neita að fara í COVID-próf svo hægt sé að vísa þeim úr landi.

Fréttablaðið hefur meðal annars fjallað um málið en flóttamennirnir eiga það sameiginlegt að vera með alþjóðlega vernd í Grikklandi en telja ekki mögulegt að vera þar. Komu þeir því til Íslands. Hefur þeim verið vísað úr húsnæði Útlendingastofnunar og lýsti einn þeirra, Mohammed Bakri, að þeir gætu ekki lengur keypt sér mat eða komist ferða sinna. Þeir hafi verið sviptir öllu.

Gísli gagnrýnir mjög meðferðina á hælisleitendunum og segir meðal annars: „Suma daga skammast ég mín fyrir að vera Íslendingur“

„Það á að vísa þeim öllum úr landi vegna Dyflinnarreglugerðarinnar sem heimilar ríkjum að senda hælisleitendur aftur til þeirra ríkja sem þeir komu frá, sem í þeirra tilfelli er Grikkkland – ríkis sem talið er óöruggt af öllum nema Íslendingum,“ segir Gísli sem átelur Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra.

„Ég mæli með því að Áslaug Arna heimsæki flóttamannabúðirnar í Grikklandi áður en fleiri flóttamenn verða sendir þangað. Ég mæli einnig með því að Áslaug Arna og embættismenn hennar reyni að komast af á götunni á Íslandi þar til niðurstöður næstu kosninga liggja fyrir – þær munu liggja fyrir áður en niðurstaða fæst í mál flóttamannanna.“