„Kannast lauslega við tvo af þremur oddvitum ríkisstjórnarinnar. Að góðu einu. Þann þriðja hef ég aldrei hitt,“ segir Gísli Páll Pálsson, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Grein Gísla ber yfirskriftina Skammist ykkar.
Gísli segir að rekstrargrundvöllur hjúkrunarheimila hafi markvisst verið veiktur í tíð núverandi ríkisstjórnar, þvert á það sem fram kom í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar árið 2017.
Gísli segir að þríeykið, oddvitar ríkisstjórnarinnar, hafi sett í stjórnarsáttmála sinn eftirfarandi orð:
„Einnig verður hugað að því að styrkja rekstrargrundvöll hjúkrunarheimila en áhersla verður einnig lögð á aðra þjónustuþætti, svo sem heimahjúkrun, dagþjálfun og endurhæfingu.“
Gísli spyr svo hvort þetta hafi gengið eftir og hvort rekstrargrundvöllurinn hafi verið styrktur. Því er fljótsvarað, segir hann. „Nei, síður en svo. Hann hefur verið markvisst veiktur í tíð þessarar ríkisstjórnar, sem er að ljúka næsta haust. Sumir segja sem betur fer. Í stað þess að auka við fjárframlög umfram launa- og verðlagshækkanir, þá eru hjúkrunarheimilin, auk dvalar- og dagdeildarheimila, krafin um niðurskurð upp á hálft prósent á ári. Árin 2018, 2019, 2020 og nú stendur til að skera enn og aftur niður um hálft prósent skv. fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021.“
Gísli segir að á sama tíma hafi nær öll önnur heilbrigðisþjónusta fengið hækkanir á fjárlögum umfram launa- og verðlagshækkanir á meðan öldrunarþjónustan situr eftir.
„Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé með vilja gert til að svelta öldrunarheimilin svo mikið að þau gefist upp og skili rekstrinum til ríkisins. Sem er nákvæmlega það sem er að gerast. Nýlega var því lýst yfir að ríkið mun taka yfir rekstur allra öldrunarheimila Akureyrarbæjar um áramótin. Hið sama er uppi á teningnum, misjafnlega langt komið, í Vestmannaeyjum, á Höfn í Hornafirði, Fjarðabyggð og víðar.“
Gísli segir ótrúlegt að Sjálfstæðisflokkurinn láti sig engu varða þessa „grímulausu ríkisvæðingu“ öldrunarþjónustunnar.
„En lengi má manninn reyna og mér sýnist þessi ríkisstjórn ætla að gera allt hvað hún getur til að keyra öldrunarheimilin í þrot. Samhliða því neyðast stjórnendur þeirra til að draga úr þjónustu til heimilismanna, þeirra sem hafa byggt upp þetta ágæta þjóðfélag sem við búum í. Þau eiga það síst skilið,“ segir Gísli sem endar grein sína á þessum orðum:
„Svona rétt í lokin þá er vert að nefna að Landspítalinn rekur biðdeild á Vífilsstöðum, hvar ýmiss konar þjónusta er lakari en á hjúkrunarheimilum landsins. Fyrir það greiðir ríkið, sjálfu sér, rúmlega 52 þúsund krónur á sólarhring. Fyrir meiri þjónustu í mun huggulegra húsnæði, í flestum tilfellum, á hjúkrunarheimilum landsins greiðir ríkið aftur á móti eingöngu rúmlega 38 þúsund krónur. Fyrir lakari þjónustu greiðir ríkið 36% hærra verð, sérstakt. Það er þetta með Jónana.“