Mynd­band | Skar á lásinn hjá Gísla með slípi­rokk - „Lás af dýrustu gerð“

Leikarinn og leik­stjórinn Gísli Örn Garðar­son birti mynd­band í morgun sem sýnir þjóf skera á lásinn á raf­magns­hjólinu hans með slípi­rokk en hjólinu hans var stolið fyrir utan Borgar­leik­húsið í gær­kvöldi.

„Ekki von­góður um að það finnist, en þá meira víti - öðrum til varnaðar: þessu hjóli var stolið fyrir framan aðal­inn­gang Borgar­leik­hússins á meðan ég var að sýna á laugar­dag. Slípi­rokkur. Nokkrar sekúndur (eins og sést á videói) þrátt fyrir fullt af fólki í kring. Lás af dýrustu gerð,“ skrifar Gísli á Face­book.