„Verum betri en þetta,“ segir sjónvarpsmaðurinn og fyrrverandi borgarfulltrúinn Gísli Marteinn Baldursson á Twitter-síðu sinni.
Þar deilir hann tísti rithöfundarins Þórdísar Gísladóttur sem gagnrýndi aðgerðaleysi yfirvalda þegar kemur að flugvellinum í Vatnsmýri.
„Fyrir 21 ári voru íbúakosningar um framtíð flugvallar í Vatnsmýri. Ég fór í Ráðhúsið og kaus. Meirihluti vildi flugvöllinn burt. Ég hlakkaði til að losna við hann. Hann er þarna ennþá. Það er ástæða fyrir því að ég trúi ekki að Borgarlína komi á meðan ég lifi. Það gerist ekkert,“ sagði Þórdís og óhætt að segja að margir hafi tekið undir með henni.
Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, benti þó á að ákveðinn munur væri á þessu tvennu.
„Ég skil vonbrigði með flugvöllinn, en munurinn er þó sá að það er búið að setja Borgarlínuna á skipulag með svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015, fjármagna hana með Samgöngusáttmálanum 2019 og búið að fjárfesta fyrir 1,1 milljarð í undirbúningi sem er í fullum gangi.“
Verum betri en þetta. https://t.co/Q8Mfk6QluQ
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) May 18, 2022